Quattro - Mía litla og oktopússí

July 7, 2006

Lestin stoppaði í bókaskápnum

Filed under: 2006 — njola @ 7:43 pm

Tiltektarhraðlestin er ennþá stopp í þriðju hillu ofan frá í bókaskápnum. Losnaði reyndar við fullt af vinil um daginn, gleymdi að telja hann fyrst, svo við-losunar-bókhaldið er í rugli.
Fór af lestinni yfir í bókavímu og súkkulaðiát. Hef einhvern vegin tekist að telja sjálfri mér í trú um að súkkulaði sé gott ráð við gróðurofnæmi. Afleiðingarnar eru vel sjáanlegar.
Líkist aftur búrhval og er orðin íturvaxin á ný. Útsöluheimsóknir sanna fyrir manni hvernig komið er, komin upp í 16 til 18 í fatastærðum. Hef á strútslegan hátt reynt að ímynda mér að að ég sé bara svona brjóstgóð þrátt fyrir að spegillinn sé með ábendingar um að hinn íturvaxni vöxtur sé um mig miðja. Get væntanlega líka reynt að sannfæra mig að þetta sé ótímabært brjóstkassasig. En þar sem ég er að fara í virðilegt brúðkaup í byrjun ágúst, þá verð ég að setja súkkulaðið út í kuldann svo ég komist í rjómatertu-flíkina (blúndur og dót) sem keyptur var í tilefni þessa.
Og svona til að skapa smá spennu þá er það útileguferð í Skagafjörðinn. Verður rigning, munum við eftir stöngunum í tjaldið, ætti ég að fara í flúðasiglingu? …… og viti menn unglings-drottningin ætlar með, getum við sofið saman í tjaldi án þess rífast, dam, dam, dam.
Kíkið endilega á síðu SHA www.fridur.is og skoðið ályktunina um ,,varnarmálinn”

Next Page »

Powered by WordPress