Quattro - Mía litla og oktopússí

June 21, 2006

Tiltektarhamur

Filed under: 2006 — njola @ 8:35 pm

Er loksins komin á rétt ról í dót-útrýmingunni. Endaði meðal annars Kolaportinu ásamt öðrum sem mér tókst að kveikja í með rusl-útrýmingar-ræðum mínum. Nú þorir enginn að koma í heimsókn af ótta við að fara með plastpoka út frá mér af hinum nytsamlegustu hlutum.
(Ég hef þá bjargföstu trú að á endanum rati hlutir á þá staði sem þeim eru ætlaðir.)
Ég þekki orðið Sorpu stöðina við Ánanaust eins og eigið heimili (myndi samt ekki vilja búa þar).
Ekki er nóg að losa sig við dót, heldur er verið að losna sig við ýmis önnur verkefni, t.d. félagsstörf af ýmsum toga. Þá grynnkar á möppu og pappírshrúgunum….
Núna í næstkomandi október mun ég einungis eiga sæti 4 nefndum og ráðum í stað 9 áður og það sem er betra ég mun ekki gegna formennsku í nema í einu þeirra.
Sé einnig fram á að vera búin að koma 5 bæklingum í prentsmiðju fyrir lok ágúst (með góðri hjálp annarra sjálfboðaliða)
Er líka á hugleiðslunámskeiði á fimmtudagskvöldum, þar sem ég á að einbeita mér að því að muna að ég er í raun friðsæl sál. Hugmyndin er að hjálpa manni að sleppa tökunum á hinum ýmsu aðstæðum. Mjög gaman að láta reyna á þetta í umferðinni í Reykjavík, með misjöfnum árangri þó ;0&
Er búin að innrita mig í dreifnám næsta vetur og mun efalaust dreifa kröftum mínum þar ;0).
Það merkilegasta við þetta tiltektarvesen allt saman að þetta er smitandi. Maður byrjar í einum skáp og svo gengur þetta koll af kolli. Er reyndar svo mikið í stuði að ég myndi vilja fresta öllum prófarkarlestri á næstunni og taka geymsluna með trompi. Loksins þegarer búið að trekkja mig í gang. Eldhúsið var auðvelt, fataskáparnir í raun líka og hvað vil ég í raun eiga mikið af gömlum kvittunum?
Bráðum kem ég til með að verða algerlega fatalaus…neh bara djók.
En nú fer vinillinn að fjúka, áhugasamir hafi samband.
Svo er það þetta með Mind over matter, if you do not mind, it doesn´t matter… frekar tvíeggjað finnst mér.

Next Page »

Powered by WordPress