Quattro - Mía litla og oktopússí

May 20, 2006

Félagslynd vika

Filed under: 2006 — njola @ 6:08 pm

Hef verið að borða hómópatalyf og litið út eins og broddgöltur með akúpúnktur nálar í mér. Viti menn orkan hefur aukist. Gróðurofnæminu, vefjagigtinni og síþreytunni rétt langatöngin að engilsaxneskum sið um stund. Reyndar er fegurðarblundurinn og hugleiðslan enn ómissandi.
Mér til undrunar þegar ég lít til baka yfir vikuna þá hefur ýmislegt verið framkvæmt.
Studdi dyggilega kosningabaráttu Vinstri Grænna með límingum á álhaus-kálhaus kortið seinasta mánudag. Svo trítlaði ég með áróðursbækling flokksins í mörg hús eina kvöldstund. Með í för var vinur minn David frá Ástralíu sem hefur dvalist hér síðan á þriðjudag. Þegar til kom hafði hann meiri áhuga á hinum ferfættu íbúum hverfisins en að troða inn um póstlúgur, en reyndist ágætur bæklingahaldari.
Hann kom hingað fyrir tveimur árum og heldur því fram að allt sé að minnsta kosti 20% dýrara en þá. Reyndar heldur hann því líka fram að íslenska sé erfiðari en kínverska. Endaði þetta í málfræðipælingum sem vörðu heila kvöldstund (heldur absúrd kvöldskemmtun ;0)
Á fimmtudag var ég viðstödd opnunina á Myrkraverk og misyndismenn í Þjóðabókhlöðunni sem var ágæt út af fyrir sig nema hinn nútímalegi sellóleikur virtist ekki passa fyrir mína heyrn. Átti ég í mestum vandræðum með að þykjast hafa áhuga á honum. David sem var með í för og sat undir íslenskum glæpasöguupplestri í rúma klst., sem er varla gaman þegar maður skilur ekki orð, en hann hreyfst af selló-sagverkinu. Svona getur fólk verið ólíkt. Fólk getur reyndar séð mitt framlag til sýningarinnar ef grant eru skoðuð myndverkin sem fylgja.
Mikil ósköp, klúðraði líka sumu, t.d. gleymdi að fara með mömmu til læknis og dröslaði dóttur minni í sjúkrapróf í samræmdu prófi á vitlausum degi, til allrar hamingju degi of snemma en ekki of seint.
Í gærkvöldi lauk svo vinnuvikunni með því að Ragga vinkona fór með mig í óvissuferð í Salinn í Kópavogi að sjá 90 ára gamla uppljómaða konu. Boðskapurinn var í hnotskurn don’t worry, be happy
Í dag var svo tveimur tertum komið á koppinn í tilefni 50 ára afmælis Réttó. Hlýddi þar á t.d. Langa Sela og Skuggana en Réttó hefur alið mikið af tónlistarmönnum.
Og nú er að hvíla sig ;0)

May 3, 2006

Smá vandræði með Kommentin!

Filed under: 2006 — njola @ 4:58 pm
Next Page »

Powered by WordPress