Quattro - Mía litla og oktopússí

April 29, 2006

Loforð, fengsjú og falur svefnsófi

Filed under: 2006 — njola @ 9:29 pm

Hef lofað að byrja að blogga aftur. Allavega þar til í ágúst…..

Hef tilefni þess að halda upp á 16 ára afmæli dóttur minnar verið í því að Feng-sjúga heimilið. Það líkist kannski því að ryksjúga að því leiti að hlutir eru færðir til eða fjarlægðir hreinlega.
Hef auðvitað komist að því fyrir löngu að ég er haldin drasl-isma. Hef undanfarið verið að reyna nýta mér tólfspora-hugsunarháttinn til að ná tökum á drasl-fíkn minni. Drasl fíkn felst ekki endilega í því að drasla út eða hafa allt í rusli, heldur kannski líka í eins og í mínu tilviki, þeirri brjargföstu trú að það borgi sig að geyma alls konar hluti til að nota þá seinna. Ég á samt ekki fimmtán fiskabúr uppi á háalofti eins og sumir!!!
Einnig er ég haldin mikilli endurvinnslu hugsjón sem birtist í því að ímynda mér að ég ætli að stoppa í sokka, gera við hitt og þetta sem er nææææstum allt í lagi. Ég er með skáp inni í geymslu með hálf-löguðu, hálf-viðgerðu mjög nýtilegu dóti sem mér tókst að hálftæma og koma á Sorpu í endurvinnslu á einum eftirmiðdegi. Losaði mig líka við tvö borð og bekk, legókubbaglás og vonandi kemst Barbístórfjölskyldan á betra heimili bráðlega.
Var bara nokkuð roggin yfir þessu þangað til vinkona kom í heimsókn og tók ekki eftir öllu rýminu eða hvað þá flæðinu sem ég hélt að réð ríkjum. Hún vildi að ég særi þess eið að losa mig við þrjá hluti á dag næstu þrjá mánuðina. Semsagt 90 stykki hlutir. En svo er hún svo svínsleg að taka ekki með í reikninginn t.d.
Það sem kemur hérna í sviga er hennar komment:
- að skipta um ljósaperu (nei, telst ekki með: er eðlilegt viðhald)
- henda ónýtum sandölum (þjóðþrifaverk)
- ruslpóstur (alls ekki ! Bara eðlileg endurvinnsla)
- þrífa bílinn ( aldrei heyrt um sjálfsvirðingu?)
Þar sem vinkonan tiltektarsama fer til Svíþjóðar í þrjá mánuði, þá á ég víst að gefa vikulegt rapport hér á blogginu um horfna hluti.
Annars er hugmyndin sú feng-sjúlega séð að við að losa sig við hluti sem maður í raun ekki notar að það skapist rými í lifi manns fyrir ný áhrif.
EF einhvern vantar Futon svefnsófa 140×200 (með snjáðu áklæði) á svörtum málmramma þá máttu koma að sækja hann hið fyrsta! Þetta er reyk og gæludýralaust heimili svo hann er o.k. til svefns.
Ætti ég að losa mig við vínilinn? Á fullt af góðum velförnum vínill sem er mjög sjaldan spilaður. Kannski væri hægt að selja hann?
Reyndar í afmælisboðinu í dag þá fannst nú sumum að íbúðin hefði stækkað, svo ég segi nú bara eins og Bridget Jones, humph!

Að lokum Gajol-speki vikunnar: Við berum ekki einungis ábyrgð á því sem við gerum heldur lika því sem við létum ógert.

Next Page »

Powered by WordPress