Quattro - Mía litla og oktopússí

February 22, 2006

ónotatilfinning, brrr

Filed under: 2006 — njola @ 8:12 pm

Í morgunasárið þar sem ég var að keyra unglinginn í skólann þá lenti ég fyrir aftan bíl sem var með álímdan miða á stuðaranum (bumper-sticker). Á honum stóð: Frodo has lost, Bush has The RING.
Hvílík skelfing ef Bush hefði Hringinn: One ring to bind the all…….
Getum við ekki strax byrjað að velja okkur grafstað og til að vera viss, kannski er vissara að sjá um sína eigin erfidrykkju hið snarasta svo það verði nú almennilegt fjör.
Auk þess er betra að vera viðstaddur er það ekki ?! af alkunnri meðvirkni;0).

Tilveran: Tek mér til fyrirmyndar jurtir sem stunda ljóstillífun þessa dagana. Orkustig mitt er í lágmarki og framkvæmdir eftir því. Þetta kemur samt ekki í veg fyrir óraunhæfar hugmyndir um getu mína, framkvæmdalistinn daglega eins og hjá framkvæmdastjóra hjá ,,Eitthvað Group” en afköstinn engu betri en hjá stöðum asna. Asnar eru að sjálfsögðu einstaklega áhugaverð hófdýr sbr. hlutverk þeirra í mörgum dæmisögum.

Ég kemst stundum að því (allaveganna um stund) að líklega sé tilgangurinn með tilveru minni að rækta með mér þolinmæði. Reyndar er ég hrifnari að orðinu þolgæði. Verð svo mædd og vonlaus við tilhugsunina um alla þessa þolinmæði sem ég á eftir að ávinna mér. Að vera þolgóð eru miklu svalara. En samt læðist að mér efasemd, þolir maður að vera góður? Er í raun og veru gott að vera þolinn? Er þetta í rauninni betra nafn á uppgjöf? Uml, þvogl og fjaður!!!!

Bókmenntir kvöldsins: Vetrarundur í múmíndal og lesning gærdagsins: Blómin í ánni sem hægt er að mæla með fyrir alla tilfinningasama friðarsinna og fæst keypt í Friðarhúsi við Snorrabraut gegn sanngjörnu gjaldi!

February 11, 2006

Rúm-skynjun

Filed under: 2006 — njola @ 10:15 pm
Next Page »

Powered by WordPress