Eitthvað út í bláinn
Bloggaði bara fínt blogg um daginn um Múmíndalinn auk þess sem ég ákvað að brydda upp á leik. En klúðraði þessu og mér skilst að bloggið mitt hafi verið autt.
Er ég er held ég samt að komast á þann punkt, að skilja hversu marþætt og margrætt blogg getur verið. Er á því að naumhyggjubloggið au la Ármanus er mjög sniðugt. En líka erfitt. Að klikkja út hnyttinni, gáfulegri setningu sem er lífsvitur í bland. Ekki auðleikið það.
Mikið af skemmtilegum getraunum í gangi á netinu. Popp-púnktur á Skjánum er líka góður.
Fékk endurgreitt frá Skattmann í dag. Alveg lyginni líkast, fyrst endurgreiða þeir mér of mikið í ágúst og svo rukka þeir of mikið til baka(taka af manni barnabæturnar), alls kyns bréfastúss og simtöl til stofnanna og svo fær maður endurgreitt. En þetta er góð litlu jólagjöf.
Hvet alla friðarsinna til að koma niður í Friðarhúshttp://www.fridur.is og koma á pöbb-kvissið sem verður þar bráðlega. Svo er bara tilvalið að leigja húsnæðið og vera þar með góða mannafundi.
Er annars að jafna mig eftir lungnabólgu og gengur það treglega. Verð því að vera til friðs hérna heima. Kosturinn að ég hef farið það að laga til og fundið alls kyns gleymda hluti. Out of sight, is out of mind.
Hef velt því fyrir mér hvort ég eigi að hafa áhyggjur af vaxandi minnisleysi, fékk þá skýringu að það þetta væri Syndrome nefnt CRaFT (can’t remember á fucking thing).
Hef greinlega drepið allar miðaldra heilasellurnar á unglingafylleríunum, ójöfn kvótaskipting þar.
En hver hefur svosum áhuga á því.
Best að fara að hugleiða á von, frið og mannjöfnuð….