Quattro - Mía litla og oktopússí

October 16, 2005

Kurteisi kostar ekki neitt

Filed under: 2005 — njola @ 6:28 pm

Var í Rauða kross sjoppunni á Lansanum að afgreiða eins og ég geri stundum. Skammdegis þunglyndið hefur verið að hellast yfir mig undanfarið og vetrarlöng barátta er hafin. Það létti mér lund að vera kurteis þegar ég var að afgreiða. Held að orðin gjörðu-svo-vel og takk fyrir séu bara til góðs. Reyndar finnst mér alltaf gott að vinna fyrir Rauða Krossinn, skapar góða jarðtenginu. Maður er í núinu þegar maður er að afgreiða og fylla á vörur.

Annars er æðri máttur að sparka í rassinn á mér um þessar mundir, þarf að gæta að heilsunni og láta ekki vinnuna yfirtaka allt. Þarf að herða lyfjameðferð.

Þakka mér að mubblan hans Sverris er orðin að mubblu, annars er er gert ráð fyrir því að manneskjur séu kolkrabbar þegar kemur að svona samsetningu. Engin leið fyrir einhvern með tvo handleggi hversu laghentursem hann er að koma þessu saman.

Markmiðið þessa dagana er að gera allavega 1-2 hluti á dag sem mér finnast leiðinlegir, þá get ég kannski losnað við eitthvað af því. Á morgun verður stofnanadagur, Lansi >sprauta, Skattman>leiðétting, Tryggingastofnun>leiðrétting, Bíll>smyrja.
Og svo er bara að muna að kurteisin kostar ekki neitt.

AVE

Next Page »

Powered by WordPress