Quattro - Mía litla og oktopússí

September 18, 2005

Það var sosum auðvitað

Filed under: 2005 — njola @ 8:53 pm

Rétt skal það vera! Bókmenntafræðingurinn bróðir minn hefur bent mér á að mig hafi misminnt með hin fleygu orð Jónatans úr Kardimommubænum: ,,Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð vont. ”
En ég ætlaði að hafa það á hinn veginn, stundum lærir maður nefnlega af eigin klúðri.
Rólegur dagur í dag, skrapp aðeins í Friðarhúsið og var nýtt í að mála í kverkar. Eldaði lærisneiðar og er að fara að horfa á vídeó.
Á morgun er útréttingadagur, skattamann, ÖBÍ, Tölvulistinn og fyrsti leikfimitíminn í vetur og fundur í vinnunni.
Á þriðjudaginn lyfjagjöf í æð inni á Borgó og vonandi á miðvikudag kemst ég á kaffihús með vinkonu minni.
Spurning um að koma með speki dagsins og fara rétt með hana:
Haft eftir góðri vinkonu, ekkert er verra en óhlaðinn sími.

Bless í bili.

September 17, 2005

Eins og ég geri aldrei neitt….

Filed under: 2005 — njola @ 7:28 pm

Frosti bítur í tærnar

Filed under: 2005 — njola @ 7:01 pm
Next Page »

Powered by WordPress