Að plata sjálfa/n sig
Honey I’m home….
Sem sagt komin aftur úr fríinu. Sniðug þessi frí… Hef nefnilega ekki verið í fastri atvinnu um nokkura ára skeið sökum löggilds örmagna status og því ekki fattað að það erum öllum nauðsynlegt að fara í frí öðru hvoru. Brjóta upp hverdaginn og helst fara í burtu.
Sem ég og gerði, fór á Vestfirðina. Æðri máttur sá um góða veðrið og ég er svo heppin að eiga þar vinkonur sem hýstu mig.
…. En ein ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað er í raun ekki sú að minn margklofni persónuleiki sé alltaf í k´risu og viti ekki hver eigi að fá orðið, heldur leti og tölvuleikjafíkn. Semsagt játa það hér og nú að sitja sveitt við að komast upp í efstu borð og er orðin það góð að ég á orðið eftir toppa sjálfa mig. Tek fram að sem góðum friðarsinna sæmir ekki með skotleiki, síminn kallar Ave