Quattro - Mía litla og oktopússí

June 16, 2005

Hættulegt að vakna of snemma

Filed under: 2005 — njola @ 12:43 pm

Vei, íslensku stafirnir komnir aftur!
Er þessi útlendi gaur sem er í varðhaldi eftir að hafa dritað grænni jógúrt á ál-ráðstefnugesti þessi sem var með námskeiðið í borgarlegri óhlýðni? Búið að sleppa íslendingunum en útlendingurinn enn í haldi.
Staðfest sem alla hefur grunað hingað til ÚTLENDINGAR ERU STÓR-HÆTTULEGIR!!! Þvílikt bull. Þó svo ég persónulega sé ekki talsmaður sjálflýsandi súrmjólkur mótmæla þá finnst mér full langt gengið að fara með manninn eins og hryðjuverkamann.

Ætlaði í gær að hrósa mér fyrir að hafa dröslast í gegnum bókhaldið og byrjað á því að troða því í möppu í skipulegri röð. (Alveg óþolandi þegar meyju-rísandinn hjá mér vill skipuleggja eitthvað, hm!)

En ætla núna að leggja mig, nenni ekki að fara yfir málvillur og punkta. Er hægt að fá M.A. í prófarkarlestri? Neeii, hélt ekki.

Fer með bílinn í skoðun á eftir, átti víst að vera löngu búin að að fara með hann. Eins gott að pústið detti ekki af litla, beyglaða japanska bílnum mínum þegar ég fer að hossast um Vestfirðina í júlí.

Var spurð að því í gær hvað ég ætlaði að gera í sumar-fríinu svaraði ég um hæl, ,,lakka glugga-karmana”. Viðmælandi minn spurði hvort ég ætlaði ekki að gera neitt skemmtilegt, eftir smá hik, ég:,, jú, þýða….
Viðmælandinn: ,,Come on”, og fórnaði höndum.
Jú svo ætla ég að fara á flakk. Mest á Vesturlandi og kannski á Flúðir.
En núna leggja sig, hengja upp þvott, vaska upp, skoða bíl, og tannsi og svo á spítalann til mömmu, sauma gallapils með dótlunni, og veii kannski þvo gólf, já, svo þarf ég að saga af búkkum, endalaust fjör!!”!!!!

_nnur tilraun, ‘islensku stafirnir enn/’a t’yndir

Filed under: 2005 — njola @ 1:23 am

ótrúlega dugleg í dag

Filed under: 2005 — njola @ 1:08 am

June 10, 2005

18. maí….?????

Filed under: 2005 — njola @ 9:20 pm

Tröllin tóku mig, gúlp, hvín, suk og snoft!

Filed under: 2005 — njola @ 9:01 pm
Next Page »

Powered by WordPress