Quattro - Mía litla og oktopússí

April 30, 2005

..ekki dauð

Filed under: 2007 — njola @ 3:58 pm

Stórmerkilegt! Hér er ég búin að hlakka til að komast í bloggsamfélagið, en þá hefst barátta upp á líf og dauða hjá mínum margklofna persónuleika. Alter-egóin hafa tekist á um hver eigi að fá að presentera mig út á við. Fyndinn? Gáfuleg? Meðvitaður húmanisti, arrgh sá kvölina sem á völina.
þessi vika hefur verið svolítið spes, hef verið minnt rækilega á að ég er með gróðurofnæmi, því hæ, hó og jibbíjei það er komið vor. En á hverju vori er ég alltaf jafnhissa þþegar ég stíflast öll, klæjar þessi ósköp bak við augun og verð öllu undarlegri en vanalega. Kata systir segir að þetta sé repressive memory, maður vill ekki muna svona vanlíðan.
Gærdagurinn var til heiðurs Sverri bróður sem varði doktors-bókina sína og bauð svo öllum í standandi veislu í Norræna húsinu, gleðin hélt svo áfram í Stúdentakjallaranum þar sem eitt af sjálfunum mínum varð ansi drukkið, en þar sem ég vaknaði í eigin rúmmi í morgun tiltölulega laus við marbletti og skrámur þá hef ég líklega verið til friðs.
Reyndar var ég næstum komin á þá skoðun í Norræna að ég ætti að skrá mig í japönsku næsta vetur, stundum kem ég jafnvel sjálfri mér á óvart.
Sverrir fékk fullt af fínum gjöfum, hluti af þeim rataði heim til mín, finnst Sverrman myndin ansi góð. Annars virðist umfang og eðli gjafanna benta til þess að þetta séu bækur, geisladiskar og áfengi.
Ætla að standa mig betur í blogginu, líklega best að blogga á morgnana þegar enginn unglingur hefur hertekið tölvuna.
svo er 1. maí á morgun og mótmælum verður sinnt af samviskusemi. Ave

Next Page »

Powered by WordPress