Quattro - Mía litla og oktopússí

January 3, 2009

sökudólgarnir fundnir en..

Filed under: 2007 — njola @ 6:50 pm

…ég ætla ekki að segja ykkur frá því strax, heldur draga ykkur á asnaeyrum fram á sumar..

September 29, 2008

Ain´t doing nice anymore!

Filed under: 2008 — njola @ 6:52 pm

Í draumum mínum(svefni) hefur tröll nokkuð verið að gera óskunda. Fólkið í draumunum yptir bara öxlum og segir: Æji, það lætur oft svona, það koma allir til baka á endanum sem það tekur!

Tröllið heitir reyndar bara 2000 tröllið. Sem sannur anti-Freudisti geri ég mér grein fyrir því að þetta sé draumatákn með vísun í atburð árið 2000 en ekki einhver ísmeygileg kynferðisleg túlkun. Mig rennir í grun hvaða tröll þetta er. Ef grunur minn er á rökum reistur þá má búast við skáldverkum frá mér í næstu jólabókaflóðum með titla eins og: Þér kemur það ekki við! Hlutir sem þú vildir ekki vita! Skapandi skepnuskapur! …og síðast en ekki síst:

Veruleikafyrta mannkyns-frelsunar-áráttu kennslukonan sem hætti að vera almennileg.Ef einhver man eftir The Fat Womans Joke eftir Fay Weldon þá er þetta bók með álíka tilvistar-fölu og fúlu yfirbragði í bland við teiknimyndir au la Hugleikur.

September 24, 2008

Blehhhh

Filed under: 2008 — njola @ 6:34 pm

Fjar-ræn, alls ekki orð-ræn, haldin vef-rænum kvillum þessa dagana.

Góðir punktar í tilverunni eru:

  • Illugi selur, systursonur minn, sem er ekki enn búin að læra vitræna orðræðu
  • Jakob, Kobbi gormur
  • Álfrún afleggjari.
  • Dans vinir og annað álíka létt brjálað fólk
  • Bækur, tónlist, kvikmyndir
  • Og min kære familie

Slæmir punktar eru:

  • Aðeins 24 tímar í sólarhringnum
  • Lyfjaveiki þ.e. lyfin sem eiga að halda mér á lífi er öll í einhverjum kross-milli-bull-verkunum, þar af leiðir er hundslöpp þó hinn ,,lífshættilega lang-veiki” sem hrjáir mig sé í góðu standi
  • Læknavísindinn skoða mann í pörtum. Er að reyna að fá þá til að skoða mig í heild og taka ábyrgð á öllum pörtunum í einu, arrgh!
  • Orðin leið á gamla lífinu, langar til að verða brjálaður listamaður og fremja friðar-gerninga

Allar fyrirbænir, fjárframlög, þolinmæði og ný líffæri þeginn með þökkum

August 20, 2008

Ekki dauð, ekki gift færeyingi, skokka ekki, hjóla hm?

Filed under: 2008 — njola @ 9:03 pm

Ennþá í kúltursjokki eftir Færeyjaferðina í júní. Karlhylli mín var svo mikil að ég var farinn að borða hvítlauk í massavís(virkar á vampírur en lítið á Færeyinga). En að öllu ólognu þá er kvenskortur í Færeyjum. Vantar í aldurshópnum 35-50 ára. Þær fara í nám og koma ekki heim, giftast dönum og íslendingum.
Fyrir höndum menningarnótt 2008, tékkið á Friðarhúsi, friðsamleg dagskrá þar.

Þetta hefur verið mánuður vinnu, gróðurofnæmis, rómantískra langana og daglegra gönguferða. Var gerð rækilega grein fyrir því á Reykjalundi í vor að hreyfing væri eitt hið besta lækningameðal allra tíma.

Ó, vei hvað gera anti-sportistar þá?? Málamiðlunin er að ganga á hverjum degi, helst við sjávarsíðuna.

En það kastaði fyrst tólfunum þegar æskuvinkona kom auga á mig að koma úr Gróttuhringnum og sagði með forundran og hryllingi í málrómnum:,, Ert þú farin að skokka?!?” Ég gat til allrar hamingju svarið þann verknað af mér og lofað henni í sárabætur að við skildum nú eitthvað reyna að jamma saman á næstunni.  Og nú tekur við játning sem eftir að valda skjálfta hjá öllum sem þekkja til, er alvarlega að hugsa um að fara að hjóla…

June 19, 2008

blíbb, blehh

Filed under: 2008 — njola @ 11:25 pm

Fer á morgun til Færeyja. Ragga vinkona sem bíður mín fagnandi, sendir mér æ fleiri skilaboð um það sem ég þarf að koma með mér til Thorshavn. Verð tekin með yfirvigt að smyggla inn bráðnauðsynlegum ,,heilsu” vörum fyrir tilvist okkar næstu daganna. Vantar, nei bráðvantar leiðindapúkann sem Jack Nicholson lék As Good as It Gets þeirri mætu gamanmynd. Hann var alger snillingur í að pakka.

Ég er ekki búin að ná að þvo það sem ég ætla hafa með mér eða þá ná í læknadópið mitt til apótekarans eða hvað þá ná í eitthvað af ómissandi hlutunum hennar Röggu heim til hennar. Allamalla, eh , be, búuu! En flugið er ekki fyrr en um þrjú….kraftaverk gerast…ansi oft. Nú ef ég stend uppi með engar nærbuxur en 30 pör af sokkum þá má eflaust næla saman lendaskýlu úr sokkunum.

June 18, 2008

Svett, you bet!

Filed under: 2008 — njola @ 7:07 pm

Laugardaginn 14. júní fór ég með dansglöðum 5rytma félögum í svett hjá Nonna og Heiðari.

Mikil lífreynsla, dansinn áður var góður, maturinn á eftir líka góður, gott að vita að ég kom í þennan heim til að miðla ;0) og er indígóblá ;0) (já, já veit að ég hef algerlega misskilið bloggmiðilinn að margra vina áliti, eins og ein sagði við mig að það eigi að blogga oft (miðla)…kannski lifi ég bara í annarri tímavídd?)

En svettið sjálft, púff….áhugavert!!! sagði hundurinn með broddinn í trýninu eftir hafa reynt að kyssa rassinn á broddgeltinum. Hélt á tímabili að ég myndi hreinlega deyja úr hita, en kyrjuninn dróg mann áfram. Andi elgsins fínn en þegar var komið að anda kólíbrifuglsins þá var ég nú til í geispa golunni. En mikið var gott að liggja í grasinu á eftir, að fá kalda vatnsfötu yfir sig. Var orðin þakin í grasi þar sem ég reyndi að grafa mig niður í svörðin inn í svett-skjaldbökunni til að finna einhverja kælingu.
Og ég sem er alger sauna-brjálæðingur - kannski var það niðamyrkrið… Andlega séð þó spes, held það væri gaman að gera þetta að vetrarlagi. Léttist um eitt kíló og hef verið að söngla: Heyja, heyja, …og annað í þeim dúr síðan…

June 16, 2008

Lukkunnar pamfíll!

Filed under: 2008 — njola @ 5:32 pm

Ég á sjö-mílna-skó sem ég fékk í afmælisgjöf og er á leið Fjárlúsareyja. En það er víst söguskýringin á heiti Færeyja, hm?

Hef verið heppin þessa dagana, fengið námsstyrk, dansað fimm-rytma dans í góðra vina hópi og almennt hlutir gengið vel.

Svo ég hlýt að vera lukkunnar pam-fíll?  En hvers konar furðuverur eru það? Vil ég í raun og veru, vera pam-fíll? Eru pamfílar kannski þegar allt kemur til alls geðillar bísamrottur eða laumu hernaðarsinnar? Þá er betra að vera lukkufíll!

Bók vikunnar án efa er:I feel bad about my neck, and other thoughts about being a woman eftir Noru Ephron (When Harry met Sally). Svona til þess að brjóta höfundarlög þa ætla ég vera með nokkrar tilvitnanir í bókina.

Never marry a man you wouldn’t want to be divorced from.

I love apartments because I lose everything. Apartments are horizontal, so it is much easier to find the things I lose……..

I’ve just surfaced for spending several days in state of rapture-with a book.

The way I saw it, if Bill had behaved, Al would have been elected, and thousands and thousands of people people would be alive today who are instead dead. (hluti af söguskoðuninni Whose Fault Was It?)

Hinar tvær sem ég gleypti eru ekki minnisverðar. Önnur bandarrísk Yrsa og hin öllu skárri kanadísk hm, smá í ætt við Noru Roberts.

Að lokum ef einhver veit eða getur komið með athyglisverða skýringu á tilvist pam-fíla þá bið ég viðkomandi að svar þessum pósti og upplýsa okkur.

June 12, 2008

Fegurð í æð, með æðarfuglum og andöktugum öndum

Filed under: 2008 — njola @ 12:32 pm

Var nú í lok maí í Berufirði. Og ég segi það satt sem heiftúðugur unnandi íslenskrar náttúru að þetta er með fegurri stöðum á Íslandi. Alla, malla, allavega þá var ég í náttúrutransi þarna og það besta var að gróðurofnæmið lér ekki á sér kræla.

Á bænum sem ég dvaldist voru endur, hænur og sauðfé. Og svo ein æðakolla sem hélt hún væri önd…

Ætli ég sé í raun anarkisti sem heldur að hún sé vinstri-græn?

December 6, 2007

vinsæll neytandi

Filed under: 2007 — njola @ 12:50 pm

Jamm sammála Stefáni, niður með Tjurginn!Verð samt að taka tillit til þess sem einn af læknum mínum sagði um daginn en það var að ég hagaði mér alltaf eins og ég væri ódauðleg. Sællar minningar um blóðtappann í janúar síðast liðnum, þegar vinkona góð spurði mig hvað ég ætti mörg líf eftir af þessum níu.

Þetta er orðin 5-6 skipti sem ég hef verið hætt komin. Má draga af þessu lærdóm?
Jams, manneskjur eins og ég sem eru haldnar vinnualkóhólisma kunna sér ekki hóf fyrr en eftir nokkrar kýlingar. Núna í þetta skiptið var ég samt skynsöm og varð bara alvarlega veik en ekki dauðveik. Annars er það auðvitað helber dónaskapur og frekja af þessum blessuðu læknum sem eru að reyna að bjarga lífi manns að heimta að maður hætti að vinna og færi endanlega á örorku þarna árið 2000, huhh! Allt háskólanámið, metnaðurinn, stjórnseminn algerlega vannýtt…

Mikill mannauður farin forgörðum eða hvað? Ég reis á fætur og þurrkaði mér um nasir og gerðist sjálfboðaliði. Auðvitað get ég ekki verið sjálfboðaliði í einum samtökum og hef herjað á Rauða Krossinn, tólf spora samtök og Samtök hernaðarandstæðinga. Að venju þar sem ég tek ekki tillit til sjúkdómsins eða hann ekki til mín öllu heldur, þá tekst mér ekki að framkvæma helminginn af því sem ég lofa upp í ermina á mér en eitthvað verkast þó undan konunni. Þurfti núna að segja stopp og draga mig út úr nokkrum nefndum og stjórn.

Reyndar er ég farin að dufla við Amnesty og hef augastað á Kvennahreyfingu ÖBÍ. Er svo reyndar í námi með þessu. Gigtarlæknirinn minn heldur að ég sé hálfu starfi allavega við þetta brölt. Vinkona mín kallar mig Oktopússí, þar sem ég sé eins og brjálaður kolkrabbi með angana í allar áttir. En það var eitt sem ég ákvað þegar ég fékk blóðtappann að hér eftir þá vel ég alltaf skemmtilega atburðinn af tveimur ef ég þarf að velja á milli. Kannski ábyrgðarleysi en miklu skemmtilegra!!!!

Bækur vikunnar: Blóðberg (var að endurlesa, góður húmor), Bíbí (var að byrja, flott bókakápa) og eftir Fred Vargas(kona) Have Mercy On Us All: Virkilega góður krimmi, með sögulegu ívafi um Svarta dauða. Svo er það eilífðarbókin í bland: eftir Karen Kingston: Clear Your Clutter with Feng Shui. (skítt með fengsjúið, frábær pæling um drasl-isma)

Tónlistin:Kim Larsens greatest; Guld og grönne skove : þægileg og námsvæn tónlist. Gabrielle Roth; Endless Wave vol.2
Að lokum:
Á hverjum degi fæ ég meil um að hinir og þessir hafi sent komment á hér bloggið. En þar sem vinir og vandamenn er að mestu hættir að reyna að senda mér nokkuð sökum bloggfæðar, þá fæ ég  komment frá lyfjaframleiðendum. Þetta er ekki bloggörvandi!
Var þó búin að útiloka rusl-póstvörn t.d. orð tengd kynlífi og meinta happadrættisvinninga.(tek það samt fram að ég vil gjarna bæði hérna í 3. víddinni ;0P)
Nú þarf ég greinlega takast á við lyfja-mafíuna. Finnst alveg nóg með þau lyf sem ég verð að taka vegna Tjurgsins þó ég þurfi ekki annað sull.

December 4, 2007

lesið um konuna sem dó ekki

Filed under: 2007 — njola @ 5:22 pm

af einhverri ástæðu þá bloggaði ég á page en ekki post og þá fer þetta þarna til hægri efst á stikuna. jamm

Next Page »

Powered by WordPress