Wikileaks
Sá ágæti maður Pétur Tyrfingsson sagði um daginn að allt tal um sannleiks- eða hvítbókarnefnd væri út í hött. Ég er sammála Pétri, það mun ekkert af viti koma útúr slíkri vinnu.
En það er hinsvegar nauðsynlegt að við fáum allt upp á yfirborðið. Ekki bara til að úthluta skömmum og ábyrgð heldur líka til að reyna að læra af mistökunum og átta okkur betur á því hvað varð til þess að Ísland fór á hausinn.
Gegnsæi hefur verið afskaplega lítið á Íslandi til þessa. Því verður augljóslega að breyta. Miðað við það hvernig stjórnvöld hafa hagað sér undanfarnar vikur eru ekki miklar líkur á því að frumkvæðið að því að opna fyrir upplýsingaflæði komi þaðan.
—
Ég hef ég heyrt í ótalmörgum sem hafa upplýsingar sem er nauðsynlegt að líti dagsins ljós. Þegar tekið er tillit til þess hvað ég er vinafár er þetta alveg stórmerkilegt og segir mér að það liggja ýmsar upplýsingar út um allt sem væri áhugavert að komast í.
Líklega er reiði einn besti hvati fyrir upplýsingaleka. Það er þessvegna nauðsynlegt að nota ástandið núna til að virkja þá reiði sem er að magnast upp.
Það fóru líklega um eitt þúsund manns í uppsögnum bankanna. Þar fyrir utan eru þeir sem eftir sitja á verulega skertum launum. Og þetta fólk er margt hvert alveg brjálað.
Þetta er náttúrulega bara byrjunin. Það verða massívar uppsagnir allsstaðar. Fjölmiðlarnir munu hrynja, fjárfestingafélögin, allt heila klabbið. Mikið af reiðu fólki með mikið af mjög eldfimum upplýsingum.
—
Vandamálið er að sjálfsögðu ekki bara í einkageiranum. Þeir sem áttu að standa vörð um hagsmuni almennings hafa klikkað alveg svakalega. Það má finna ýmislegt mjög undarlegt í ákvörðunum ráðamanna undanfarin ár.
Gallinn er hinsvegar sá að það fólk mun að öllum líkindum halda sínum vinnum - a.m.k. á meðan ríkissjóður hefur úr einhverjum peningum að spila. En það má samt búast við því að einhverjir þar séu tilbúnir að koma út upplýsingum ef þeir geta treyst því að þær séu nafnlausar.
—
Sem sagt. Það er til fullt af fólki sem liggur á allskonar upplýsingum. Ríkisvaldið mun aldrei getað tekið á málinu af augljósum aðstæðum, embættismennirnir eru vanhæfir og/eða óhæfir, fjölmiðlarnir hafa alltaf verið hálf ónýtir og munu versna, dómstólarnir geta ekki tekið á þessu. Málið verður í besta falli sett í nefnd þar sem það mun útvatnast og eyðileggjast.
En þrátt fyrir að það muni aldrei koma nein formleg niðurstaða þá þýðir það ekki að fólk hafi ekki rétt á því að vita hluta af sögunni. Eins stóran hluta og mögulegt er.
En til þess að af því geti orðið þarf einhvern grundvöll til að koma upplýsingum á framfæri. Sérstaklega fyrir þá sem vilja koma sýnum upplýsingum nafnlaust út. Fólk er ennþá hrætt. Það vill enginn kjafta. Bæði af því að með því gæti það verið að koma sér í lagalega klemmu en líklega er stór hluti hræðslunnar við almenningsálitið.
—
Niðurstaðan finnst mér vera nokkuð augljós. Það er tæknilega frekar auðvelt að koma upp vef þar sem hægt er að setja inn upplýsingar sem er (nánast) ekki hægt að rekja. Ég segi nánast af því að það er í sjálfu sér allt hægt. En það væri í það minnsta eins öruggt og nokkuð getur orðið.
Það er m.a.s. til vefur sem var settur upp með þetta markmið og heitir Wikileaks.org. Það væri í sjálfu sér hægt að notast við þann vef en það er nú samt einhvernveginn þannig að fólk myndi að ég held frekar vilja hafa íslenskan hjúp. En það er náttúrulega bara útfærsluatriði.
Að sama skapi væri betra ef það væri eitthvað á bakvið vef eins og þennan. Einhver samtök, helst mörg samtök. Á móti má spyrja hvort það séu til einhver samtök hér sem njóta trausts.