Nýr og endurnærður

Komiði sæl

Ég hef ákveðið að snúa aftur á bloggvöllinn. Oft var þörf og allt það.

Hef verið að velta þessu fyrir mér undanfarið (t.d. greinilega komist að því að persónufornöfn eru tímasóun í kreppu) og sé ekki betur en að ég verði að koma ýmsu á framfæri.

Sumir vilja meina að frjálshyggjan hafi dáið drottni sínum með hamförunum sem hafa dunið yfir. Það er að sjálfsögðu að mestu leyti rétt. Hitt er verra, þ.e. að sömu aðilar vilja stundum meina að hagfræðin hafi farið sömu leið. Það er alrangt. Hagfræðin hefur þvert á móti staðið óviðrið af sér og styrkst verulega.

Flestir þeir hagfræðingar sem hafa fylgst með undanfarin ár - og hafa ekki haft augljósa sérhagsmuna að gæta - hafa varað við sem nú er að gerast.

Til að taka af allan vafa þá er ég reyndar ekki hagfræðingur. Ég er með b.a. í heimspeki, b.s. í viðskiptafræði en ég kláraði aldrei m.s. námið mitt í hagfræði.

En þrátt fyrir það er ég líklega betur menntaður í hagfræðunum en allir sem nú sitja á Alþingi. Þetta gæti verið tóm lygi en mér dettur a.m.k. enginn í hug sem er með M.S. gráðu í þeirri fræðigrein, hvað þá Ph.d. (Geir H. er reyndar með M.A. en það er seríós útgáfan.)

Annað sem ég einhverjir gætu talið mér til tekna er að ég hef ekki tapað neinu umfram venjulegt fólk. Ég er ekki með gjaldeyrislán, ég átti enga peninga í sjóðum og ég átti engin hlutabréf. Þeir peningar sem ég á liggja í fasteignum (sem hafa á sér verðtryggð lán á föstum vöxtum í íslenskum krónum), verðtryggðum reikningum og erlendum gjaldeyri. Að ónefndum ýmsum tækjum og raftólum.

Reyndar vildi ég benda á að þeir sem t.a.m. segja að reiði Egils Helga hljóti af stafa af því að hann hafi persónulega tapað einhverju eru á miklum villigötum. Jafnvel þótt hann - eða aðrir þeir sem eru núna brjálaðir - hafi ekki tapað neinu umfram aðra þá er alveg augljóst að það finnst enginn á Íslandi sem er ekki persónulega tengdur einhverjum sem hefur ekki þegar tapað fleiri milljónum eftir hrun bankana.

Allir sem sjá lengra en nokkra klukkutíma fram í tímann vita líka að allir húsnæðis- og krónueigendur hafa tapað verulega á síðustu tveim vikum. Fjármunum sem venjulegur verkamaður er mörg ár að vinna sér inn.

Það er því glórulaust að ætla að heimta það að þeir sem ræði þessi mál séu ekki illa brenndir. Í þessu erum við öll Jónína Ben. En til að sætta þær smásálir sem eltast við svona hluti þá er ég ekki - að svo stöddu - eitt af hinum raunverulegu fórnarlömbum.

Í þriðja lagi þá er ég ekki tengdur inn í nein sérhagsmunasamtök, fyrirtæki eða flokka. Pabbi minn er reyndar borgarfulltrúi fyrir VG og ég hef alltaf kosið þann flokk. Viðurkenni það með nokkru stolti því að þótt ég hafi alltaf verið algjörlega á móti gjaldeyrisstefnu flokksins þá trúi ég því að þar sé það fólk sem er best meinandi í íslenskri pólitík.

Ég hefði náttúrulega frekar viljað að það væri kannski aðeins meira vit á bak við þeirri meiningu en góður vilji er alltaf betri en illur, jafnvel þótt hann sé kannski stundum sljór.

Allavega, þriðji punkturinn er settur fram til að sýna að ég styð ekki þá sem sumir vilja rífast um. Ég er ekki baugsmaður, eða sjallamaður, moggamaður eða fréttablaðsmaður, mér er ekkert meira illa við Geir sem gaur heldur en Imbu sem gellu, forsetinn er fyrir mér alveg sama hyski og Björn Bjarna, ég gæti alveg drukkið bjór með Dabba eða Jóni Ásgeiri. Þetta er allt fínt fólk á sama tíma og þau eru öll fífl. Eins og reyndar allir sem ég þekki.

Allt ofansagt er til að undirbúa þau orð sem ég ætla að leggja í belg. Ég hafði nefnilega hugsað mér að á næstu vikum muni ég skrifa hér ýmislegt um ástandið sem Ísland og íslenskt samfélag, efnahagslíf og stjórnmálalíf er komið í.

Ég er alveg viss um að fullt af því sem ég mun segja muni á endanum ekki rætast. Spádómar, sérstaklega um framtíðina, og sérstaklega á mestu óvissutímum síðan Adam Smith var og hét, verða alltaf frekar trikkí. En ég er líka nokkuð viss um það að mínir spádómar verða í það minnsta óháðir, áhugaverðir, skemmtilegir og frábærir. Af því að ég er bara þannig gaur.

En allavega. Bíðið spennt. Planið er að setja hér inn komment á hverju kvöldi. Vonandi rætist það.

p.s.
ég er ekki í japan

Comments are closed.