SkallinnInn
Wednesday, July 23rd, 2008Hér koma myndirnar sem lofað var í síðustu bókun:
- eitt
- tvö
- þrjú
Ég klúðraði reyndar klippingunni þegar ég var að reyna að jafna hana betur þannig að ég þurfti á endanum að raka allt hárið af. Næst þyrfti ég helst að vera með svolítið síðara hár svo ég nái comboveri líka.
—
Annars er það helst í fréttum að ég er að fara til Tókíó í þrjár vikur í byrjun september. Og ef allt gengur að óskum þá fer ég síðan í ca 3ja mánaða heimstripp í febrúar. Ég flýg þá frá London í austurátt og lendi aftur í London komandi úr vestrinu ógurlega.
—
Síðan var ég líka jafnvel að hugsa um að halda uppá afmælið mitt í byrjun næsta mánaðar en enn er óráðið hvort og hvenær það verður. Fylgist spennt með.