If you´re going to …
Sunday, September 30th, 2007Er að fara til New York á morgun. Verð þar í nokkra daga og flýg þaðan til San Fran og verð í viku. Ætlum að leigja bíl og rúnta eitthvað held ég. Annars er þetta allt frekar óljóst. Það er hinsvegar ljóst að það verður fjör. Eða það vona ég.
Eftir rúnt um Kalí fer ég svo aftur til New York og verð aftur í nokkra daga. Síðan kem ég heim í kringum 12.okt.
—
Valur vann segja þeir. Ég er víst Valsari þannig að það var ágætt. Reyndar byrjaði ég bara að halda með þeim af því að allir hinir í bekknum mínum voru KR-ingar. Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama um fótbolta. En það er samt fínt að þeir unnu. Mínir menn og svona.