Archive for June, 2007

af öðru

Friday, June 8th, 2007

Ég kíkti aðeins út í kvöld. Eins og verða vill hitti ég einstakling sem spurði við fyrstu kynni hví ég væri í hjólastól. Ég svaraði að bragði að ég hefði lent í mótorhjólaslysi á ferð minni um Evrópu. Bætti því síðan við að konan mín hefði verið farþegi á hjólinu. Hún lést víst samstundis. Mjög sorglegt allt saman.

Alla jafna segi ég sögur sem þessa við fólk sem mér finnst ekki hafa neinn rétt á að spyrja mig að svona spurningu þegar ég hitti það í fyrsta skipti. Stundum er ég nýkominn úr friðargæslunni í Serbíu. Stundum þurfti ég að bjarga barni úr brennandi rúst. Ég á fullt af fínum sögum sem vekja áhuga.

Allavega. Undanfarið lendi ég sífellt oftar í því að þeir sem ég segi þessar ævintýralegu sögur byrja að tala um bók og eða bíókvikmynd sem heitir The Secret. Samkvæmt töfraformúlunni sem kemur fram í þessum fræðiheimildum þá er víst hægt að ímynda sér út úr og inní allar kringumstæður.

Ég get því dansað mig uppúr hjólastólnum ef ég bara reyni að vera í góðu skapi. Að sama skapi var ég bara í svo vondu stuði einhverntíma að ég lenti í stólnum. Eiginlega alveg mér að kenna.

Í sameinuðu ríkjum norður amríku er það venjan að karlmaðurinn bjóði kvennfrúnni út. Í því felst í raun og veru allt. Maður borgar fyrir tyggjó og tannstöngla og allt þar á milli, fyrir ofan og undir.

Einhverjusinni hélt ég að þetta væri eitthvað bíómyndagrín en svo er alls ekki. Ég hef farið á nokkur svokölluð deit hér í amríkunni og ég er svo svo gott sem fjármagna. Ef það er þá orð.

Allavega. Ég er mikill kvennjöfnuður í orði og verki en í landi sem þessu verð ég að segja að launabundinn kynójöfnuður er ekki bara réttlætanlegur, hann er nauðsynlegur.

Nokkur orð um VG og ríkisstjórnarmyndun … þvílíku klúðri hef ég aldrei orðið vitni að fyrr né síðar. Eða jú kannski. Svipuð saga var sögð eftir borgarstjórnarkosningarnar fyrir rúmu ári.

Ein af ástæðunum fyrir því að ég hef aldrei kosið annað en VG er að þau eru einstaklega ópragmatísk. Í framhaldi af úrspilun síðustu kosninga held ég hinsvegar að ég geti ekki annað en endurskoðað mitt kosningaval.

Fyrir nokkrum dögum fékk ég nóg af svitanum sem hafði ofsótt mig. Ég ákvað þessvegna í flýti að raka mig svo gott sem sköllóttan. Hér má sjá árangurinn (http://flickr.com/photos/70272628@N00/535700488/). Eins og Brad Pitt í Snatch shit segja sumir. Sumir segja annað.