Hitt og þetta
Thursday, May 24th, 2007Ég bara varð að rjúfa bloggbindindið mitt til að benda lesendum á þetta frábæra vídeó (http://www.kristjansson.dk/namib/namibtour08.mov).
—
Af öðru. Undanfarnar vikur hef ég búið í Chinatown hjá súrum breskum gaur. Í rauninni var ekkert beint að honum. Ég og Dave náðum bara aldrei saman. Þar fyrir utan er Chinatown ekki hverfi að mínu skapi og ekki má gleyma því að herbergið mitt var ekkert til að hrópa húrra yfir.
Það var þessvegna mikil gleðistund áðan hjá mér í dag þegar ég flutti aftur i gamla hverfið mitt, Williamsburg í Brooklyn. Hérna verð ég a.m.k. þangað til í september. Hvað þá verður veit nú enginn.
Ég deili íbúðinni með tveimur stelpum og tveimur köttum. Ég hef áður búið með tveimur köttum. Ég hef hinsvegar aldrei áður búið með fleiri en einni stelpu. Þær virðast hinsvegar vera næs þannig að ég hugsa að þetta gangi.
—
Ég lenti í daginn í smá slysi sem varð til þess að vörin mín rifnaði all svakalega, ég braut tönn og fékk laglegan skurð á ennið. Vörin og ennið eru að batna en ég verð víst að bíða með að laga tönnina þangað til að ég kem aftur heim. Þótt ég sé með tryggingu hér kóverar hún víst ekki fegrunaraðgerðir sem þýðir að slík lagfæring væri dýrt spaug.
—
í gær keypti ég flugmiða heim. Ég mun lenda laugardaginn 16.júli og fara aftur heim 7. ágúst. Það verður fjör. Eða það vona ég.
Reyndar verð ég að vinna á meðan þar sem ég á eiginlega ekkert sumarfrí inni. Í kanalandi þykir við hæfi að gefa starfsmönnum tvær vikur i frí á ári.
—
Fór á ótrúlega bjarkartónleika hér um daginn. Ég hef aldrei verið mikill fan þótt að ég eigi það til að hlusta á eitt og eitt lag. En þessir tónleikar voru magnaðir. Nýju lögin voru að mínu mati hápunktarnir, sérstaklega Earth Intruders og Independence Song. Hef heyrt þau í plötuútgáfunni og þau eru því miður alls ekki jafn góð þar.
Á tónleikunum sat ég við hliðina á blökkukonu. Pældi ekki mikið í henni. En þegar þeir voru búnir áttaði ég mig á því að þetta var Tracy Chapman.
Eftir tónleikana var svo eftirpartí með Björk og hljómsveitinni. Því miður voru þar engir frægir eins og ég hafði vonað. Frekar leim. Mest leim var samt að það var rukkað fyrir bjórinn í partíinu.
—
Undanfarið hef ég verið að hugsa um hvað ég ætla að gera eftir að ég fer frá New York. Upphaflega hugmyndin var að vera hérna í u.þ.b. eitt ár. Ég hugsa að ég reyni að halda mig við hana, vera kannski hérna til áramóta eða svo.
Eins og staðan er í dag hef ég lítinn áhuga á að fara aftur heim. Það á kannski eftir að breytast en í augnablikinu finnst mér það einstaklega óspennandi. Í stöðunni eru ýmsir möguleikar en þessa stundina er ég heitastur fyrir því að fara í sjálboðaliðastarf, helst til Afríku eða jafnvel Suður ameríku. Ég veit reyndar ekki alveg hvað ég hef að bjóða en það hlýtur að vera eitthvað sem ég get gert.
Hef verið að senda pósta og lesa mér til en ég hef ekki ennþá fundið neitt sem mér líst vel á. Ef einhver er með hugmynd má endilega senda mér línu á halli@cubancouncil.com.