Á heimleið
Thursday, February 8th, 2007Í næstu viku rennur út fresturinn sem maður fær til að vera í Bandaríkjunum á túrista visa. Ég ætlaði mér þessvegna að kíkja í heimsókn þá og ganga frá atvinnuleyfisvisa.
Fór áðan á netið til að panta mér flug en sá þá að flugmiðinn kostaði 2600$ plús skattar. Það er náttúrulega geðveiki. Flug á morgun kostar hinsvegar 400$. Niðurstaðan varð því sú að ég flýg heim annað kvöld og lendi þ.a.l. á laugardagsmorguninn.
Í tilefni af því verður partí í Glaðheimum á laugardagskvöldið. Öllum skemmtilegum er boðið.
—
Á sömu mínútu og ég pantaði miðann heim fékk ég þetta í tölvupósti:
“Hi,
I am in Amsterdam Airport, my foreward flight was not issued AND I lost my wallet with everything in it.
There is a person from Icelandair in Amsterdam trying to call you so that you can buy me a ticket to Paris, which will probably refunded, and call me through the airport.
The number is + 31 - 20 - 601 2136
You can use this number by exception only because of the emergency.
Love and puke,
Ugla”
Núna er ég að hugsa um að hringja og athuga hvað er í gangi.