Archive for January, 2007

Framtíðin er þráðlaus

Monday, January 15th, 2007

Ég fór í gær og keypti mér Airport Express. Fyrir þá sem ekki vita er það græja sem m.a. streymir neti þráðlaust. Það sem mér fannst öllu áhugaverðara var þó að hún getur líka sent þráðlaust hljóð í heimilisgræjurnar í gegnum iTunes. Þetta finnst mér þrælsniðugt. Á sama tíma keypti ég líka þráðlaust lyklaborð. Framtíðin er þráðlaus. Ójá.

Ég var líka að fá gítarinn minn frá Íslandi. Hann er að sjálfsögðu þráðlaus.

Ég býst við að koma heim í lok mánaðarins í nokkra daga til að ganga frá pappírsmálum útaf visanu mínu. Það verður gaman. Ugla er að fara að leika í mynd í febrúar þannig að kannski náum við að samræma ferðaplönin þannig að við verðum á landinu saman. Frá Reykjavík fer hún síðan í fjóra mánuði til Parísar til að læra frönsku í Sorbonne.

Ugla fór áðan með fjóra fulla poka af fötum í þvott. Við fáum hann til baka á morgun, straujaðan og samanbrotinn. Fyrir þetta borgum við 14 dollara. Það finnst mér bara nokkuð vel sloppið.

Á morgun er Martin Luther King dagurinn hér. Þá fá sumir frí. Ég er einn af þeim. Hinsvegar fá flestir sem eru í láglaunastörfu ekki frí. Þannig er ekki ólíklegt að svarti maðurinn sé almennt að vinna. Það er svolítið öfugsnúið.

Talandi um svarta manninn. Um daginn hitti ég svartan mann í hljóðfæraverslun. Við vorum báðir í röð við kassann. Hann sagði hey man við mig. Ég sagði hey. Síðar sagði mér einhver að þarna hefði verið á ferðinni Redman. Redman sagði hey man við mig. Ekki slæmt man.

Fyrir utan Redman er frægasti maðurinn sem ég hef séð hér Bjarni Ármanns. Hann sá ég þegar ég heimsótti Sameinuðu þjóðirnar. Hann sagði ekki hey man við mig. Hann sagði bara alls ekki neitt við mig.

Post #877

Saturday, January 6th, 2007