Borat og Friedman
Wednesday, December 13th, 2006Ég var að hlusta á rökræður Friedman og prófessoranna þriggja. Ég get nú ekki sagt annað en að Friedman hafi gjörsamlega pakkað þeim saman. Kannski var ekki við öðru að búast en þetta var vægast sagt vandræðalegt.
—
Ég er aftur kominn með hálfsbólgu og kvef. Sömu vandamál og plöguðu mig í marga mánuði heima þangað til að ég byrjaði að taka lýsi og vítamín á hverjum degi. Ég skildi vítamínin eftir heima þegar ég fór út og hef þ.a.l.ekki tekið minn skammt að undanförnu. Ugla keypti þessvegna fyrir mig heilann helling af pillum í gær þannig að ég vonast til að þetta komist í lag fljótlega.
—
Við skoðuðum íbúð í fyrradag sem leit bara nokkuð vel út. Sturtan var reyndar alls ekki nógu góð fyrir mig en leitin er orðin svo þreytandi að þetta gæti orðið þrautarlending. Meira um það síðar.
—
Sá Borat um daginn. Hún var mjög fyndin í u.þ.b. klukkutíma.