Af frændum
Sunday, October 29th, 2006Bjössi er hress að vanda og gerir upp prófkjörið. Þar er ýmislegt fróðlegt að finna. T.a.m. kemur þarna fram að brottför hersins hafði bein áhrif á ákvörðun hans að hætta ekki í stjórnmálum. Þetta var sannkallaður Bjarnargreiði hjá könunum. Persónulega hefði ég frekar viljað halda hernum aðeins lengur ef það hefði þýtt að Björn myndi hætta.
Hann segir líka frá því að hann hafi varað Gulla við að fara gegn honum þar sem að það myndi vera hættulegt fyrir flokkinn. Ef þetta var hans einlæga skoðun hefði hann væntanlega átt að fórna sér fyrir flokkinn og hætta sjálfur við framboð.
Annars virðist mest í þessu uppgjöri Björns vera skammir úti þá sem eru honum ósammála. En sá hópur er víst ansi stór. Flestir myndu væntanlega líta í eigin barm en Björn er á því að óvinsældir hans séu öllum öðrum en honum kenna.
—
Fór í þrjúbíó að sjá Mýrina með Jónsa frænda. Myndin var nokkuð góð miðað við íslenska mynd. Ef hún hefði verið á ensku býst ég samt við því að ég hefði skipt um stöð frekar fljótlega.
Í kvöld var svo matur hjá systu. Þar voru auk gestgjafans afi og amma, ég og Ugla, Jónsi, Eloise og Tristan (sem kallar sig reyndar Didda) og Bolli frændi.
Flestir eru væntanlega á því að það er búið að vera ansi mikil breyting á forystu Sjálfstæðisflokksins. Villi tók við borginni, Geir við landinu, Borgar við krökkunum, Andri við buddunni, Björn er á leiðinni út og ég efast um að margir svari Hannesi þessa dagana. Gamla súra klíkan er því sem næst horfin.
Fyrir nokkrum árum fór Bolli á móti þessari klíku og gerði nánast fjandsamlega yfirtöku á Heimdalli. Þar voru við völd ungir menn sem studdu Björn, Hannes, Sigga Kára og félaga. Þegar þetta gerðist reyndi ég að útskýra fyrir einum félaga mínum í ungliðahreyfingu vinstri grænna, sem þá átti í útistöðum við Bolla á frekar viðkvæmum tímapunkti, að þetta væru þáttaskil sem myndu leiða til breyttra tíma í flokknum. Ég bað hann því að láta Bolla í friði. Hann tók ekki þessari röksemd.
Ég gerði mér reyndar enga grein fyrir því að þetta myndi gerast eins hratt og raunin varð en ég er ennþá á þeirri skoðun að þarna hafi verið byrjað að grafa gröf fyrir ógeðin sem höfðu verið við völd alltof lengi. Með Heimdalli náðu Bolli og félagar undirtökunum í SUS. Sama kosningavél og varð til þarna var ein megin uppistaðan í sigri Gulla og Villa. Fyrir nokkrum árum var talað um að baráttan um hver yrði arftaki Davíðs væri á milli Geirs og Björns. Þegar til kom varð engin barátta. Geir tók við án þess að til neinna átaka kæmi. Það er mín skoðun að þetta hefði ekki gerst ef af fjandsamlegu Heimdallaryfirtökunni hefði ekki orðið.
Núna vilja eflaust margir meina að það sé enginn munur á kúk og skít en ég er persónulega mun hrifnari af núverandi forystu heldur en gömlu jálkunum. Og er ég stoltur af Bolla fyrir að hafa hjálpað til, í það minnsta flýtt fyrir, þessari útskiptingu.
—
Áðan rakst ég á þessa mynd. Þarna er þáverandi framkvæmdarstjóri Nató að þakka Ragga frænda, sem margir þekkja af sögukennslustörfum sínum í Kvennó, fyrir að bjarga fánanum þeirra frá einhverjum skítugum kommum.
Raggi varð síðar töluvert vinstrisinnaður og skammaðist sín víst gífurlega fyrir þetta atvik. Það er gaman að geta þess að Tommi sonur hans er núna starfsmaður utanríkisþjónustunnar hjá fastanefnd Nató í Brussel. Ekki veit ég hvort Raggi skammist sín eitthvað sérstaklega fyrir hann.
Að lokum er vert að minnast á það að Raggi átti langstærstan þátt í því að hér fyrir utan er þessi líka fíni sólpallur. Það er nú ekkert til að skammast sín fyrir.