Archive for July, 2006

Partípartífrestun

Monday, July 24th, 2006

Mér þykir miður að tilkynna lesendum að innflutningspartípartíið sem átti að vera næstkomandi laugardag hefur verið frestað. Ástæðan er sú að ótrúlega margir af þeim sem ég vildi sjá í þessari miklu uppskeruhátíð verða vant við látnir þetta ágæta kvöld.

Ég hef því ákveðið að bregða á það ráð að halda veizluna góðu frekar í ágúst. Nánari tímasetning verður tilkynnt fljótlega.

Hinsvegar ætla ég mér að halda upp á afmælið mitt þennan sama dag, þ.e. 29.júlí. Öllum þeim sem vilja er að sjálfsögðu boðið - ef þeir mæta með pakka.

Það er búið að byggja pallinn heima, eða svo gott sem. Gólfið er komið en það á eftir að ganga frá nokkrum atriðum. Ég sé ekki betur en að þetta verði einstaklega kósí pallur.

Lenti í því um daginn að það var enginn hjólastóll um borð í fluginu mínu til Helsinkisem gerði það að verkum að ég komst ekki á klósettið. Ég ákvað því að bregða á leik og fara í gervi reiða hjólastólagaursins. Eftir þónokkuð stapp kom afraksturinn í gegnum póstlúguna í morgun. Tveir ókeypis miðar sem má nota á hvaða áfangastað Icelandair sem er. Já! Það Air sem er..

Partípartí

Tuesday, July 18th, 2006

Af hóstaköstum og húsum

Monday, July 10th, 2006

Mamma

Sunday, July 2nd, 2006