Archive for May, 2006

Vinstri sveifla, hægri nú

Sunday, May 28th, 2006

Það var mikil gleði á kosningavöku VG í nótt. Enda hafði fólk þar ýmsu að fagna. Ég skemmti mér hinsvegar ekki sem best. Get ekki sagt að sú staðreynd að VG hafi náð inn einum manni í einhverjum úrúmbúrubæ gleðji mig eitthvað svakalega. Kannski er ég ekki nógu mikill flokksmaður.

Það sem ég vildi helst sjá í þessum kosningum gekk ekki eftir. Pabbi komst ekki inn, enda var það heldur fjarlægur möguleiki, og Björn Ingi komst inn. Bæði fannst mér frekar súrt. Um annað var mér nokk sama. Get ekki séð að það skipti neinu stórmáli hver stjórnar í Reykjavík.

Það var búið að gauka því að mér fyrir kosningarnar að Villi og Óli væru búnir að gera samkomulag um að fara saman í meirihluta. Ég býst við að það sé vænlegasti möguleikinn.

Það væri vont fyrir VG að fara að stjórna borginni með íhaldinu einu ári fyrir alþingiskosningar og ég vil að sjálfsögðu ekki sjá Binga og co. komast í einhverja oddaaðstöðu. Býst heldur ekki við því að þeir vilji það af sömu ástæðu og VG. Annars veit maður aldrei með framsókn.

Það var líka kominn tími á skipti. R-listinn búinn að stjórna alltof lengi og væntanlega hreinlegast að þeim sé öllum skipt út á einu bretti. Vona samt að Óli fái því ekki framgengt að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Sé samt ekki að það gerist þar sem ég veit ekki til þess að einhverjar endanlegar ákvarðanir verða teknar um hann á þessu kjörtímabíli.

Fór snemma heim í gær. Sofnaður fyrir tvö held ég. Vaknaði hinsvegar ekki fyrr en að verða fjögur í dag. Aftur kominn með leiðinda hálsbólgu og bara nokkuð slappur almennt. Er að hugsa um að fara á pensilínkúr til að freista þess að losna endanlega við þetta ógeð í hálsinum á mér sem er búið að plaga mig alltof lengi.

Næstu helgi ætla ég síðan að eyða með minni heittelskuðu í Hveragerði. Fá mér ís í Eden og kíkja í tívólí. Hlusta á Bjarna Ara koma, syngja og sigra í Látúnsbarkanum og slappa af.

Mig grunar að það sé geitungabú einhversstaðar upp við húsið. Ef ég hef gluggana opna þá koma hér jafnan nokkrir geitungar á dag í heimsókn. Mér hefur dottið í hug að setja eitthvað eitur við gluggann, setja net fyrir gluggann eða einfaldlega hafa uppá búinu og flytja það undir rúmið hjá Binga. Með hverju mæla lesendur?

Fékk líka annan húsgest í gær. Þegar ég kom fram var hér einstaklega myndarlegur köttur að spóka sig. Ölli hafði þá fyrr um daginn kennt mér nokkur erótísk trix til að fullnægja felínum. Sem betur fer náði ég að standast mátið. Kötturinn fór héðan ófullnægður.

Kosningamundo

Saturday, May 27th, 2006

Fat Daddy for President

Saturday, May 27th, 2006

Fat Daddy Loves You

Thursday, May 25th, 2006

Kók eða pepsí?

Tuesday, May 9th, 2006

Ha! já

Monday, May 8th, 2006