Iceweb
Thursday, April 27th, 2006Fór á Iceweb í dag. Get nú ekki sagt að það hafi verið mikið stuð. Þetta voru aðallega kanar að tala mjög hratt í leiðinlegum hálf innantómum frösum. Allt mjög yfirborðskennt. Vonandi verður morgundagurinn skemmtilegri. Hann endar a.m.k. á kokteilaboði. Betra væri náttúrulega ef maður myndi byrja á nokkrum kokteilum.
+++
Í kvöld er pókerkvöld. Góðir menn munu mæta. Þetta átti víst að vera mánaðarlegt en ég er svo mikill fíkill að ég meikaði ekki eina viku. Á morgun ætlar Matti að bjóða mér í mat og drykki á Hereford. Á laugardaginn er Keine í Glaðheimum og á sunnudaginn verður stelpupóker þar sem ég fæ að vera með. Mikið um fyllerí framundan.
+++
Er ekki ennþá búinn að ákveða hvað ég ætla að gera í bílskúramálinu. Kannski bara best að sleppa þessu? Veit ekki alveg. Ég ætla a.m.k. að bíða eftir því að ég fái svar frá bankanum um það hvort hann vilji fjármagna þær framkvæmdir sem ég er þegar búinn að leggja útí.
Síðan er alveg að koma sumar. Þá var hugmyndin að klæða húsið að utan. Ég hef alltaf verið hrifinn af bárujárni. Er að hugsa um að klæða það skærgult. Það passar vel við Glaðheimanafnið.