Archive for October, 2005

Jó!

Monday, October 31st, 2005

Ekki búið að vera mikið um blogganir hér undanfarið. Sem betur fer myndu eflaust sumir segja. Í fréttum er þetta annars helst:

- Það eina sem stendur eftir af húsinu mínu eru útveggir og þak. Á tímabili leit m.a.s. út fyrir að skipta yrði um þakið líka en sem betur fer reyndist nóg að skipta um sperrur. Til að byrja með var allt rifið innan úr húsinu og síðan var hafist handa við að einangra uppá nýtt. Það verk er að mestu lokið núna. Næst þarf að byggja gólf og búa til innkeyrslu, skipta um rafmagn og setja upp nýtt pípusístem. Líf og fjör.

- Verkefni sem ég var að vinna í fyrir Landsbankann vann Norrænu menntaverðlaunin um daginn. Auk viðurkenningarskjals fengum við 100.000 dk. Það var gaman.

- Djöflarnir frá Keflavík halda sína fyrstu tónleika næsta miðvikudag klukkan 8 í Hljómalind á laugaveginum. Með okkur spila einhverjir góðir menn.

- Um daginn fór ég í helgarferð til Helsinki. Það er skemmtileg borg. Einhvernveginn tókst okkur samt að eyða 35þús í minibar og herbergisþjónustu. Á þremur dögum. Það hlýtur að vera met.

- Um jólin fer ég síðan í brúðkaup hjá Jónsa frænda í Namibíu. Það er allt útlit fyrir að mjög gott fólk komi með mér. Við erum nú þegar búin að bóka safariferð. Ég hef enga trú á öðru en að það verði einstök ferð.

Tuesday, October 4th, 2005