Archive for August, 2005

Ókeypis bjór

Monday, August 29th, 2005

Ákvað í ölæði á laugardaginn að ég væri breti. Talaði með einstaklega ýktum breskum hreimi það sem eftir lifði kvölds. How u doin’ mate? You’re a fecking wanker o.s.frv. Merkilegt nokk gleyptu allir við þessu sem ég hitti. M.a.s. einn náungi sem ég hafði hitt áður. Komst að því að fólk vill endilega bjóða útlendingum í glas. Fékk a.m.k. fimm gefins bjóra þetta kvöldið. Sem er vel yfir meðallagi.

Reyndar á ég almennt mjög auðvelt með að fá fólk sem ég þekki ekki til að bjóða mér í glas. Hef komist að því að besta leiðin til þess er að segja frá því þegar ég slasaðist í fallhlífastökki. Fallhlífin hafi rifnað rétt áður en ég kom niður sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég er í hjólastól. Enda síðan alltaf söguna á því að segja fólki að ég hafi ekki látið slysið hafa áhrif á mig. Segi stoltur: ég stekk ennþá. Það svínvirkar. Fólk vill hetjusögur.

Tek annars eftir því að þetta blogg er mestmegnis orðið að fylleríssögusafni. Sem segir mér að annaðhvort drekk ég alltof mikið eða að ég geri ekkert frásagnarvert þegar ég er edrú. Hvort heldur sem er þá þarf ég líklega eitthvað að fara að endurskoða min mál.

Veit samt ekki alveg frá hverju öðru ég hef að segja en ótæpilegri drykkju. Kannski eitthvað um vinnuna? Prófa það:

Alveg brjálað að gera í vinnunni. Sé ekki fyrir að ég komist í mikið annað á næstu vikum en að vinna eins og hundur. Á verkefnalistanum eru verkefni fyrir Landsbankann, Sparisjóðina, VÍS, Actavis, OgVodafone, Húsasmiðjuna, Vísi.is, Eimskip, Avion, ble ble ble. Skemmtilegt? Nei. Ég held að vinnusögur séu ekki málið.

Kannski get ég farið í ítarlegar lýsingar á öllum breytingunum á húsinu mínu. Svona a la Stebbi Páls:

Fór uppí hús um daginn með góðum mönnum. Byrjuðum á að rífa aðeins upp gólfið til að skoða hvernig hægt er að slétta það. Það er nefnilega … nei andskotinn. Hver hefur áhuga á þessu?

Hvað með eitthvað um stjórnmál?:

R-listinn leystur upp og Lilli klifurmús ætlar að verða borgarstjóri. Keppir við Villa… nei þetta er ekki málið held ég. Það vantar stríð eða eitthvað svo maður geti æst sig almennilega. Verð að láta stjórnmálin bíða betri tíma.

Held mig í millitíðinni bara við sögur af fylleríum. Það verður að duga.

Halli fjandi

Tuesday, August 23rd, 2005

Vélindabakflæði

Monday, August 22nd, 2005

Þunnur sem unnur

Sunday, August 14th, 2005

Rúðubrot

Wednesday, August 10th, 2005

Call me

Tuesday, August 9th, 2005

Bergen-Belsen

Thursday, August 4th, 2005

Skin, skúrir og skin

Thursday, August 4th, 2005

Rónadónar

Tuesday, August 2nd, 2005