Perla
Thursday, June 30th, 2005Var að fá Perlu, gamla köttinn minn, í heimsókn. Held að hún sé að verða átján ára, eða jafnvel nítján, er ekki með þetta alveg á hreinu. Í hundaárum er hún að verða tvöhundruð ára held ég. Sýnist hún líka vera orðin hundþreytt á þessu lífi, búin að sofa eins og lamb síðan hún kom.
Talandi um lömb, þá er kattalúga á nýja húsinu mínu. Er búinn að gera viðeigandi ráðstafanir og fæ nýrri köttinn minn til mín þegar ég flyt inn. Það verða fagnaðarfundir. Emmi er nefnilega hress sem fress.