Tónleikar aldarinnar
Tuesday, October 26th, 2004Nú hefur endanlega verið staðfest að næstkomandi laugardagskvöld mun stórsveitin Tony Blair trylla lýðinn eins og þeim einum er lagið. Upplifunin verður í lókali hljómsveitarinnar við Suðurgötu en Lexinn hefur ekki ennþá fengið staðfestingu á því hvenær fyrstu bassatónar kvöldsins munu líða um salinn.
Hitt er þó ljóst að minni spámenn munu sjá um upphitun fyrir hljómsveitina og hafa Dáðadrengir þegar staðfest komu sína en samningaviðræður við aðrar hljómsveitir eru á lokastigum. Það ætti því vonandi engum að leiðast mjög biðin eftir að Tony stígi á svið.
Heimildir Lexins herma að hljómsveitin hafi legið í lagasmíðum undanfarnar vikur og herma þessar sömu heimildir að a.m.k. tvö ný lög (ef ekki fleiri) verði frumflutt þetta dýrðarkvöld. Lögin hafa undanfarnar vikur verið æfð af kappi í æfingarhúsi hljómsveitarinnar og hefur Daníel Pollock af þeim sökum heyrt lögin. Í samtali Lexins við Daníel sagði hann m.a.: “Ég hélt að Utangarðsmenn hefðu verið flottir. Ég hélt wrong. Tony Blair eru the next Elvis.”
Að lokum má skjóta því að að undanfarnar vikur hefur sá orðrómur þotið um internetið að söngvari hljómsveitarinnar, Páll Fatboy Hilmarz, hyggist við þetta tækifæri koma nakinn fram. Lexinum tókst eftir miklar raunir að ná sambandi við einn meðlim hljómsveitarinnar, bróðir umrædds Páls, Hilmar Rauð Hilmarz.
Aðspurður vildi Hilmar hvorki neita né játa þessum orðrómi en hann sagði þó að Páll hafi undanfarnar vikur jafnan verið fáklæddur í æfingahúsi hljómsveitarinnar. Hann hlær dátt og bætir kíminn við: “erótíkin hefur legið í loftinu!”. Það er augljóst af samtali mínu við Hilmar að þrátt fyrir ósvikið rokkarayfirbragð meðlima hljóðsveitarinnar þá er aldrei langt í húmorinn og ljóst að gleði, glaumur, galsi eru í hjörtum þessara manna. Menn segi ég þrátt fyrir að öllum sé augljóst að það er eitthvað yfirmannlegt við þessa sannkölluðu rokkhunda.
Öllum kemur saman um að enginn hafi til þessa verið svikinn af því að heyra og sjá Tony Blair. Ekki er líklegt að breyting verði þar á næstkomandi laugardag. Lexinn hvetur því alla til að mæta og ekki skemmir fyrir að aðgangseyrir er langt undir átján krónum.