Archive for May, 2004

Sögur af borgarstjóra

Friday, May 28th, 2004

Einu sinni átti ég heima í kjallaraíbúð við Lynghaga. Hinum megin við götuna bjó borgarstjórinn í Reykjavík, sjálfur Davíð Oddsson.

Ég man lítið eftir Davíð annað en að mér þótti hann nokkuð hress kall. Einu sinni kom hann heim úr veiðitúr í lopapeysu, opnaði skottið og tók út risa lax. Hann labbaði síðan yfir til okkar, hneigði sig djúpt og gaf mömmu minni laxinn. Þetta þótti mér fallega gert.

Annað kvöld hringdi síminn heima. Á hinum endanum var borgarstjórinn. Hann hafði þá verið að koma heim og tók eftir því að það var kveikt ljós hjá okkur. Honum datt því í hug að hringja og bjóða mömmu og fósturpabba yfir. Þau sögðust því miður ekki geta þegið það boð enda var ég sofandi í íbúðinni og þeim illa við að skilja mig eftir.

Þeim þótti hinsvegar boðið gott, ákváðu að endurgjalda og buðu honum að koma yfir til þeirra í staðinn. Þótti þeim þó miður að lítið var um drykkjarföng í húsinu og spurðu kallinn hvort hann ætti eitthvað að súpa yfir spjallinu. Davíð kom yfir með lítersflösku af vodka og sagði að nóg væri til hinum megin ef hún myndi klárast.

Svo vildi til að bróðir fósturföður míns var í heimsókn þetta kvöld. Þorsteinn Gauti heitir hann og er píanóleikari. Eins og við var að búast var mikið sungið um kvöldið.

Jói, fósturfaðir minn, sem er leikari, var á þessum tíma að æfa leikrit sem ég kann ekki að nefna eftir mann sem ég kann heldur ekki að nefna. Þetta var eitthvað obskjúr leikrit eftir einhvern Íra. Jói sagði mér síðar að Davíð hefði kunnað þetta leikrit nánast orðrétt og að þeir hefðu setið fram á nótt, drukkið vodka og þulið upp línur.

Síðan þetta var hefur víst margt breyst. Davíð er hættur að vera borgarstjóri, hann hefur gránað og er ekki jafn skemmtilegur og hann var þegar ég var lítill. En mér finnst samt alltaf dálítið vænt um Davíð. Maður sem kemur með fisk og brennivín inn á alþýðuheimili getur varla verið alslæmur.

Ég fletti Mogganum og ég sé að það er sannað

Friday, May 28th, 2004

Nýir vinir

Friday, May 28th, 2004

Sarcophilus harrisii

Wednesday, May 26th, 2004

Að lifa á hundasúrum

Wednesday, May 26th, 2004

Færsla númer 700

Tuesday, May 25th, 2004

Spurning dagsins

Monday, May 24th, 2004

Af fjölmiðlafrumvarpi

Monday, May 24th, 2004

Klósettdráp

Friday, May 21st, 2004

Ég er fegurðardrottning

Wednesday, May 19th, 2004