Archive for March, 2004

Sóðamála … að ég sé

Wednesday, March 31st, 2004

Sóðamála
… að ég sé óðamála, það er ekkert nýtt. Hvað ættuð þið annars að lesa frítt? XXXR ain’t got nothing on me maður.

Skóli er ekki hús sagði einhver. Því síður spítali að því er virðist. Hvað er þá hús? Ef maður skiptir um alla múrsteina í húsi, er húsið þá ennþá sama húsið? Múrsteinn er karlkynsorð á sama hátt og listi. Stofnun er hinsvegar kvenkyns á meðan hús er hvorugkyn og þar liggur hundurinn væntanlega grafinn. Konur eru að sjálfsögðu líka menn og menn eru líka konur en múrsteinar eru samt ekki menn nema síður sé. Múrsteinar eru þó konur eins og góðum mönnum sæmir.

Ég veit jafn lítið um það hver stóð að stofnun bygginga og ég veit um það hver stóð að stofnun stofnanna. Bygging spítala er þó að sjálfsögðu mjög merkilegur áfangi í sögu hverrar þjóðar og heiti ég því að kynna mér í framtíðinni sögu allra þeirra spítala sem mér er unnt. Sérstök áhersla verður lögð á spítala sem konur létu byggja enda eru þeir mun merkilegri en aðrir spítalar. Í raun ættu konur að byggja alla spítala. Það er eitt helsta baráttumál nýrrar aldar.

Arðrán er að sjálfsögðu náskylt hlutfalli kvenna á mínum sem og öðrum listum. Kúgun sem slík er viðfangsefnið og skiptir þá engu hver er kúgaður, kona eða þrællinn sem byggði Sjafnargötu 7. Í þessu felst að sjálfsögðu ekki viðurkenning á því að minn listi hafi kúgað konur. Þótt sagan sem slík sé kúgunarsaga þá leiðir ekki af því að sá sem segir söguna sé kúgari.

Sem fyrr stend ég við minn fína lista og skora á lokum á þá sem hafa eitthvað við listann að athuga að búa bara til síns eigins lista. Ég legg til að búnir verði til topp tíu listar með fimmtán konum í það minnsta.

Thatcher … Margrét skráði t.a.m.

Tuesday, March 30th, 2004

Spurning dagsins … Síðast var

Tuesday, March 30th, 2004

Af konum … Lexinn er

Tuesday, March 30th, 2004

Spurningin … um daginn var

Monday, March 29th, 2004

Af gefnu tilefni … Lexinn

Sunday, March 28th, 2004

Best of human race Eftir

Saturday, March 27th, 2004

Þótt margir séu morðingjar …

Sunday, March 21st, 2004

Spurning dagsins … nú er

Sunday, March 21st, 2004

Streitarar … sumum þykir ekki

Sunday, March 21st, 2004