Og enn (og í síðasta
Monday, January 26th, 2004Og enn (og í síðasta sinn) af vondu gríni
… það skal hér upplýst að ég hef til þessa staðið í þeirri meiningu að grín mitt og Vals væri gagnkvæmt. Ég hef í misskilningi haldið að á bakvið orð Vals (eins og mín) hafi verið galsi og glens. Nú er svo komið að ég er alls ekki viss lengur. Ég veit ekki hvort Valur hafi ákveðið að trompa mig í mínu gríni og að skrif hans hafi verið til þess eins ætluð að blöffa fram afsökunarbeiðni. Ef svo er þá játa ég mig sigraðan.
Eins og áður hefur komið fram er ljóst að endurskoða þarf grínmat ritstjórnar. Það sem einum þykir stórfyndið þykir öðrum miður fyndið eða jafnvel með öllu ófyndið. Ég get ekki dæmt um gersneyðingu míns húmors en ég mun að sjálfsögðu ekki grínast með hluti sem þessa í framtíðinni. Það skal þó hér ítrekað að ég hélt í fáfræði minni að lesendur myndu sjá í gegnum ummæli mín og mögulega brosa út í annað.
Hvað viðkemur lygum hélt ég (og var að því er virðist einn um það - sem og annað) að öllum væri ljóst að afneitun mín á eigin orðum væri einnig grín. Ég setti fram málsvörn sem ég hélt að enginn gæti tekið alvarlega - enda er hún í raun afneitun á hinu augljósa.
Ég biðst hér í einlægni afsökunar á öllu sem ég hef skrifað. Ég biðst að sjálfsögðu afsökunar ef mín ummæli hafa verið algjörlega ófyndin en sérstaklega biðst ég afsökunar á því að hafa sært mætan mann. Það var ekki ætlunin. Lesendur geta glaðst yfir því að Lexinn hefur vegna þessa máls ákveðið að fara í frí um ótilgreindan tíma. Það má því búast við því að enginn verði, viljandi eða óviljandi, móðgaður í nánustu framtíð. Góðar stundir.