Spurning dagsins … það er
Monday, December 29th, 2003Spurning dagsins
… það er ljóst að spurning dagsins hefur þótt nokkuð strembin, a.m.k. ef marka má dræma þátttöku. Spurning dagsins verður því í léttari kantinum.
Í spurningu dagsins er spurt um túramann. Maður þessi hefur í þónokkurn tíma komið nálægt íslenskum stjórnmálum. Hann hefur ýmislegt sér til frægðar unnið, m.a. að keyra, þrátt fyrir að vera bíllaus. Nú síðast hefur maðurinn tengst frægu ránsmáli en hann situr, ásamt öðrum frægari stjórnmálamanni, að borði sem fregnir herma að enginn eigi en geti þó ráðstafað að vild.
Já. Og hver er maðurinn?