Uppsagnir kvennfréttamanna … Hilmar benti
Monday, June 30th, 2003Uppsagnir kvennfréttamanna
… Hilmar benti mér á að Stöð 2 hefði sagt upp sjö fréttmönnum fyrir helgi og áttu þeir það allir sameiginlegt að vera konur. Þetta þótti mér reyndar í fyrstu ekkert svo merkilegt og afskrifaði ég það þannig að mögulega væri einfaldlega um tilviljun að ræða. Síðan fór ég að velta þessu betur fyrir mér og reikna lítillega og kom þá í ljós að þetta er ansi hæpin tilviljun. Fylgdu mér inn í óravíddir tölfræðinnar:
Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu stöðvarinnar þá störfuðu víst um tuttugu og tveir fréttamenn á fréttastofunni fyrir uppsagnirnar og voru níu þeirra konur en þrettán karlar. Ef tilviljun hefði ráðið því hver var látinn fara þá voru því um 41% líkur á því að kona yrði fyrir valinu í fyrsta kasti. Þegar næsta ákvörðun var tekin þá hafði konunum fækkað um eina og því um 38% líkur á því að kona yrði fyrir valinu í það sinnið. Í næsta kasti voru líkurnar 35%, svo 32% og koll af kolli þangað til síðasta ákvörðunin var tekin en þá voru líkurnar á því að kona yrði valin um 18%.
Ef við gefum okkur að allar þessar ákvarðanir hafi ráðist af hendingu þ.e. að af níu konum í tuttugu og tveggja manna fréttaliði myndu sjö vera reknar, þá eru líkurnar 0,02% eða 1 á móti 4737. Í heimi óendanlegra möguleika þá er fullkomlega eðlilegt að tilviljanir rætist reglulega en það er samt alltaf jafn ólíklegt að hvert atvik fyrir sig sé tilviljun. Það getur þannig að sjálfsögðu verið að hér sé um tilviljun að ræða en það er harla ólíklegt.