Endalaust væl
… já Saddam var versti náungi í heimi og þessvegna var víst nauðsynlegt að sprengja börnin í Írak. Þessu til sönnunar hafa fundist klámspólur og ég veit ekki hvað og hvað og því löngu orðið ljóst að friðarsinnar höfðu rangt fyrir sér enda helvítis kommúnistar upp til hópa. Skrítið samt hvað kommarnir halda endalaust áfram að væla. Ég hélt að þetta stríð hefði leyst öll möguleg og ómöguleg vandamál. Undarlegt hvað sumir geta kvartað.