Archive for November, 2002

Heimsvaldasinnar gera sér glaðan dag

Saturday, November 30th, 2002

Fyrir tæplega fjögur hundruð árum áttuðu pílagrímar - sem höfðu verið hraktir til nýja heimsins, m.a. vegna öfgafullra trúarskoðanna - sig á því að villimennirnir sem þeir deildu landinu með, voru margfalt fleiri og öflugri en þeir. Þeir ákváðu því að á meðan þeir söfnuðu liði væri tímabundin nauðsyn að halda þessum villimönnum góðum. Þeir ákváðu því að bjóða villimönnunum í kvöldmat. Í sakleysi sínu og góðmennsku, þáðu villimennirnir þetta boð og komu til veislunnar klyfjaðir veisluföngum.

Nokkrum áratugum siðar, höfðu pílagrímarnir náð vopnum sínum og gátu þeir því hafið eitt vægðarlausasta þjóðarmorð sögunnar. Þegar yfir lauk, hafði þeim tekist að útrýma og hneppa í ánauð heilu ættbálkana. Í tilefni af þessu snilldarbragði pílagrímanna, gera Bandaríkjamenn sér nú árlega glaðan dag, fjórða fimmtudaginn í nóvember.

Í kvöld var af sama tilefni, slegið upp heljarinnar veislu að Nýlendugötu 30 - en þar sátu m.a. byltingarsinnarnir Hilmarar Hilmarssynir og Steinþór Steingrímsson. Mikil gleði ríkti og að málsverði loknum var mikil og góð dagskrá. Að sjálfsögðu var skálað í blóði saklausra Indíána, raddaður söngur um hinn stjörnuprýdda fána og lesnir vel valdir kaflar úr stjórnarskrá fyrirmyndarríkisins en auk þess hélt fyrrnefndur Steinþór fyrirlestur um ágæti og nauðsyn þess að á hverju heimili væri til a.m.k. einn hálfsjálfvirkur hríðskotarifill og tvær til þrjár handsprengjur.

Að lokinni veislu, ákváðu Hilmar yngri og Steinþór að bregða sér á tuttugustu kvikmyndina um handbendi djöfulsins, James Bond. James þessi hefur í gegnum tíðina einmitt verið þekktur fyrir það eitt að reka mikil áróðursstríð gegn öllum þeim sem dirfast að rísa upp gegn fyrrverandi heimsveldinu Englandi og/eða núverandi stórveldinu Bandaríkjunum. Framleiðandi myndarinnar er sem fyrr Josef Göbbels en leikstjóri Frú Leni Riefenstahl.

Ef að líkum lætur munu þeir félagar, Steinþór og Hilmar, á næstu dögum hefja þrælainnflutning frá Afríku auk þess að lýsa yfir stríði gegn hverjum þeim sem ræður yfir meira en tveimur dropum af olíu.

Mr. Aðalsteinsson I presume

Saturday, November 30th, 2002

Júrí

Friday, November 29th, 2002

Fyrir þá sem ekki lesa Múrinn

Thursday, November 28th, 2002

Þetta er nú bara kommon sens

Thursday, November 28th, 2002

Whose time is it anyway?

Thursday, November 28th, 2002

Bíótími

Thursday, November 28th, 2002

Tímaleysi

Wednesday, November 27th, 2002

Oh Jimi boy the pipes the pipes are calling…

Wednesday, November 27th, 2002

Smekkleysið tekið á annað level

Wednesday, November 27th, 2002