hættur hversdagsins

Í menntaskóla þurfti ég eitt sinn að leita læknis eftir að hafa skipt um göngustefnu. Eitthvað gerðist þegar ég snéri í aðra átt og hnéð gaf sig. Síðan hef ég reynt að skipta aldrei um stefnu í einu eða neinu.

Í gær ákvað ég síðan að brydda upp á þeirri nýjung að elda mér kvöldmat. Hvort það var æfingaleysið skal ósagt látið en í það minnsta tókst mér að fara í bakinu við að færa grænmeti í pott. Nema grænmetinu sé um að kenna.

One Response to “hættur hversdagsins”

  1. Haffi Says:

    Sannir karlmenn borða ekki grænmeti. Í mesta lagi baunir.

Leave a Reply