bestu stefin
í kreppunni á maður að þusa um það sem skiptir máli. Þar sem ég sit og skrifa fyrirlestur fyrir ráðstefnuna á morgun og hlýði á Rás 1 (maður hlustar ekki á Rás 1) velti ég fyrir mér bestu útvarpsþáttastefjunum.
Það kemur til vegna stefsins í Samfélagið í nærmynd. Hresst og gott fiðlulag og fær mann í gírinn.
Svo er eitthvað þjóðlegt og gott við stefið í Sagnaslóð - þó ekki væri nema vegna landhelgisfréttanna sem koma á undan. En kannski er þetta norsk nikka?
Vítt og breytt er með ljúft og gott stef sem er mjög lýsandi fyrir þáttinn og rödd stjórnandanna, sérstaklega Hönnu G. Sigurðardóttur, verður einhvernveginn hluti af stefinu.
Maggi er náttúrlega með flott gítarstef í Heimsauganu sínu, við öðru var ekki að búast frá honum. (Hvernig stendur á því að það er happaglappa hvort maður lendir 1, 3, eða 5 mínútum á undanum þættinum, en aldrei beint á hann á þessum drasl Rúv-vef?)
Sigurvegarinn hlýtur þó að vera Víðsjá. Það er snilld að fá Wooster & Jeeves lagið - ekki hef ég hugmynd um hvað það heitir - í upphafi þáttar. Gott ef það fer ekki fyrst í handbók fordæmanna.
Svona fer kreppan með fólk.
November 23rd, 2008 at 10:21 pm
Besta stefið er klárlega í Speglinum.