gæslan
Við feðgar fórum á völlinn áðan. Það var fínt. Þar sátum við með Skotum og öðrum Íslendingum, Brasiíumanni, enskum prófessor og ég veit ekki hverjum. Að leik loknum stóðu Skotarnir við tröppurnar og tóku brosandi í hendurnar á öllum Íslendingunum og þökkuðu fyrir leikinn.
Þegar úr stúkunni var komið biðu járngrindur okkar á leið okkar á klósettið. Ábúðafullur ungur maður hefti för okkar og sagði að hér væri bannað að fara. Ég sagði að drengurinn, 10 ára, þyrfti að pissa. “Nei það má ekki. Það verður að halda Skotum og Íslendingum aðskildum!”
Halda aðskildum já. Við gengum þá hönd í hönd út með Skotunum sem voru í okkar stúku og út á bílaplan þar sem allir hinir Skotarnir og Íslendingarnir - sem grindurnar áttu að aðskilja - blönduðu geði sáttir.
Erum við ekki aðeins að missa okkur í gæslunni?
September 11th, 2008 at 4:27 am
Er þetta ekki bara eitthvað FIFA/UEFA regluverk sem KSÍ þarfa að viðhalda?
Mér finnst það líklegri skýring en að KSÍ fari að eyða peningum í að ráða menn í svona dótarí. Þetta eru mikilvægir snittupeningar.
September 11th, 2008 at 9:20 am
Jú það getur svo sem vel verið, ég þekki það ekki. En útfærslan hlýtur að vera vallarstarfsmanna og það að aðskilja áhangendur á 20 metra kafla en leyfa þeim að blandas annars er hálfasnalegt.
September 11th, 2008 at 1:33 pm
Hefurðu séð þessa villimenn? Þetta er allt bert að neðan og ég veit ekki hvað og hvað - verið þið feðgar bara fegnir að hafa komist lífs af úr þessum hörmungum!