gamall
Jæja þá er ég orðinn gamall. Þegar maður vaknar klukkan 9 á sunnudagsmorgni, hlustar á þátt um Sigurbjörn Einarsson og brot úr ræðum hans, les skáldsögu eftir Guðmund Andra, hlustar á þátt um Sigurð A. Magnússon og hefur messuna í gangi að því loknu - tja þá þýðir víst lítið að þykjast ungur lengur.
September 7th, 2008 at 1:19 pm
Þetta er líka stundum kallað að þroskast og þarf ekki að vera slæmt. Hvernig fannst þér annars messan?
September 7th, 2008 at 2:19 pm
Æ ég hlustaði nú ekki stíft. Fannst merkilegast hvað klerkurinn var upprifinn yfir þeirri staðreynd að töluvert af fólki væri í kirkjunni. Ekki mjög pr-legt.