ægivald stuðlunarinnar

Nú veit ég vel að það þykir gríðarlega fínt að geta stuðlað fyrirsagnir. En er ægivald stuðlunarinnar ekki orðið of mikið? Í DV í dag má sjá þessa fyrirsögn:

Húsmóðir og hörkutól

Og hver er þessi hörkuduglega húsmóðir? Jú Sarah Palin sem er ríkisstjóri í Alaska. En hjá DV er hún húsmóðir. Ég ætla að gefa blaðamanninum það að stuðlunin ráði þessi en ekki eitthvað annað.

One Response to “ægivald stuðlunarinnar”

  1. Hafþór Says:

    Byssuglöð barnagæla, ástríkur olíuborunarsinni, fegurðardrottning og fimm barna móðir… Möguleikarnir eru endalausir ef stuðlunin ræður mestu um efnið, húsmóðir er ansi langt seilst miðað við allt sem hefði mátt nota í staðinn.

Leave a Reply