bömmer
Þetta kallar maður samviskusemi í gagnrýnenda. Bara svona ef einhver hefur misskilið dóminn og haldið í honum vera eitthvert hól. Og leikstjórinn rétt búinn að sætta sig við eina og hálfa stjörnu.
Leiðrétting
Vegna mistaka birtist röng stjörnugjöf með dómi um myndina Make it Happen í DV í gær. Myndin fékk þar eina og hálfa stjörnu en átti í raun að fá hálfa.