aktívistar

Nú eru silfurstrákarnir okkar komnir heim frá Peking og… nei mig langaði bara að prófa að byrja eins og hver og einn einasti pistlahöfundur landsins um þessar mundir. Nenni samt ekki að halda áfram með það.

Þess í stað ætla ég að skrifa um okkur feðgana sem dreymir um að vera aktívistar. Við erum mikið búnir að ræða um að við þyrftum að fá Palla til að útbúa límmiða fyrir okkur. Á þeim stæði umhverfissóði og við myndum nýta okkur þá í herferð okkar gegn risastórum útblástursmengandi jeppum.

Við myndum líma þá á rúður jeppanna, þannig að ökumenn þeirra þyrftu að gefa sér tíma til að plokka límmiðann af og fengju þannig réttláta refsingu fyrir fallusarduld sína sem brýst út í risaútblástursfabrikkunum og plásstakandi flekunum sem eru okkur hinum til óþæginda og öllum í raun til óþurftar.

Mögulega fæst Páll í það, þó hann hafi hvatt okkur til að lykla þetta frekar í bílana, og þá getum við feðgar orðið aktívisar. Lyklarnir eru sennilega einfaldari leið, ekki síst vegna þess að okkur yrði án efa núið um nasir að menga umhverfið með pappírnum.

Annars virðist vera órjúfanleg tenging á milli stærðar jeppanna og þeirrar bjargföstu trúar eigenda þeirra að gangstéttir borgarinnar séu  þeirra einkabílastæði. Það er trauðla (trauðla er sett hér í stað varla vegna fjölmargra áskorana) til sá maður sem þarf að hífa sig upp í bílinn sinn sem ekki leggur á miðjum gönguleiðum okkar feðga.

Húsfaðir í Vesturbænum hefur talað.

3 Responses to “aktívistar”

  1. Haffi Says:

    Nú þarf að einhenda sér í að gera ferskeytlu með rímorðunum trauðla og silfurstrákar.

  2. kolbeinn Says:

    Úff! Það þarf nú eitthvað meira en Hreinol-Steina til þess. Og þó… trauðla er viðráðanlegt:

    …auð ha?
    …sauð ha?

    Dæmi: Er satt að upp úr sauð ha?/Var þessi alltaf auð ha?

    Silfurstrákar er verra.

  3. Hafdís Says:

    Trauðla… aaaah :)

Leave a Reply