Biden
Nú er Obama búinn að velja Joe Biden sem varaforsetaefni. Ekki hafði ég hugmynd um hver Biden var. En þar sem ég þekki mann sem les internetið daglega - þá meina ég ekki að hann kíki á internetið, hann les allt það sem kemur á internetið daglega eins og aðrir lesa blöðin spjaldanna á milli - veit ég núna ýmislegt um hann.
Ég veit til dæmis að hann var einn helsti hvatamaður fyrir lögum um gjaldþrot sem þingið samþykkti að endingu eftir mikla baráttu árið 2005. Bill Clinton hafði í tvígang beitt neitunarvaldi gegn lögunum, en Biden barðist fyrir þeim og barðist gegn öllum breytingum á þeim.
Eins og lesa má um hér gera lögin almenningi sem er í fjárhagsvandræðum erfiðara að lýsa sig gjaldþrota. Þau einfalda leigusölum að bera gjaldþrota leigjendur út og þau einfalda milljónamæringum að fela ótakmarkað magn af peningum í sjóðum.
Repúblikanar munu seint veifa þessu framan í Biden - enda studdu þeir allir frumvarpið. Clinton vissi hins vegar sem var að mikill meirihluti þeirra sem lýsa sig gjaldþrota í Bandaríkjunum er tekjulágt fólk sem berst í bökkum. Ekki milljónamæringar að losna við að standa við skuldbindingar sínar; þrátt fyrir að stuðningsmenn frumvarpsins hafi sumir látið sem svo væri. Meðaltekjur þeirra sem lýsa yfir gjaldþroti eru innan við 30 þúsund dalir á ári. Þess vegna vetoaði Bill Clinton frumvarpið.
Eins og hér má sjá var Biden sá eini þeirra sem gaf kost á sér í forkosningum Demókrata sem studdi frumvarpið. Obama, Clinton, Dodd og Kucinich voru öll á móti frumvarpinu. Biden er hins vegar frá Delaware, en þar eru höfuðstöðvar margra kreditkorta- og fjármálafyrirtækja.
Nú er spurning hver áhrif Biden mun hafa á stefnu Obama. Mark Steel sagði einu sinni að Obama hefði ekkert að óttast nema Obama. Nú er að sjá hvað gerist.