niðurrif
Hún er merkileg umræðan sem á sér stað um niðurrif húsa á Laugaveginum þessa dagana. Allir þeir sem ekki vilja rífa annaðhvert hús eru sakaðir um óforbetranlega verndunarstefnu. Á sama hátt er þeim sem finnst sársaukalaust að einhver hús hverfi fyrir öðrum borið á brýn að bera ekki virðingu fyrir hinu gamla, vilja bara nýtt, nýtt, nýtt.
Þetta ætti nú svo sem ekki að koma á óvart, svona virðist umræðan vera hér meira eða minna.
Mér finnst hins vegar merkileg röksemdafærslan sem vottar af hjá Agli Helgasyni og fleirum. Hún er á þá leið - með heilmikilli einföldun - að séu hús ljót megi rífa þau; burt séð frá því hver sagan á bak við þau sé.
Þetta er skringilegt viðhorf um margt. Þetta setur niðurrif húsa gjörsamlega undir smekk samtíðarmanna hverju sinni. Einhverjum kann að þykja þau hús sem Agli og co. þykja flott núna - skelfileg eftir 20, 30, 40, 50, 100 ár. Má þá rífa þau eingöngu þess vegna?
Eitt þeirra húsa sem Egill tínir til á heimasíðu sinni sem dæmi um forljót hús - og liggur í orðum hans að megi rífa - er Kjörgarður. Stórmerkilegt hús með stórmerkilega sögu. En af því að einhverjum finnst það ljótt akkúrat núna, þá má víst rífa það.
Alveg er ég viss um að fullt af fólki finnst Bernhöftstorfan ekkert sérstök og hefði alveg verið til í að rífa hana fyrir nýtískuhús. Svo má líka vel vera að Laugavegur 4 og 6 verði slík glæsihús eftir uppbyggingu að menn muni fagna því í lengstu lög að þau voru ekki rifin.
Ef menn ætla ekki að líta á heildargötumynd - ef hún er þá til - sögulegt mikilvægi, eða einfaldlega skemmtilega sögu húsanna sjálfra; heldur láta smekk samtíðarinnar ráða - þá er einfaldast að halda einfaldlega skoðanaknnun. Er þetta hús fallegt eða ljótt? Ef svarið er ljótt: vesgú rífið það.
August 5th, 2008 at 7:51 am
það má líka spyrja sem svo; hvað er ljótt hús og hvað er fallegt? og hver hefur leyfi til að skilgreina það? - hver/hverjir ákveða fegurðarskyn/smekk samtímans?….