á uppleið
Nú hef ég náð þeim standard í blaðamennsku að Björn Bjarnason er farinn að skamma mig á heimasíðu sinni. Alltaf er maður á uppleið. Þar kallar Björn umkvartanir fyrri borgarstjóra vegna ummæla hans sjálfs spuna í mér. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Síðan tekur hann alls óskylda grein, eftir allt annan blaðamann, og nefnir það sem dæmi um málflutning sem minnir á R-listann sáluga. Til að geta sagt að ég hafi verið í honum. Heldur þykir mér langt seilst.
July 30th, 2008 at 2:36 am
Hippi!