ójá
Nú hef ég ekki kveikt á sjónvarpinu í ríflega þrjár vikur. Það verður til þess að maður les/heyrir margt magnað sem maður annars ekki hefði orðið vitni að.
Þessi síða sem ég heyrði um á BBC er t.d. mögnuð. Nú er bara að logga sig inn og tjá sig um allt sem maður sér eftir. Nema þegar maður er fullkominn eins og ég; þá er það óþarfi.
Annað magnað sem ég rakst á voru þýðingar Ástráðs og Eysteins á Kafka í Lesbókinni síðasta laugardag. Þær eru frábærar. Þar voru fleiri örsögur og kjarnyrði og áreiðanlega brýt ég öll höfundarlög með birtingu þessa brots úr örsögunni um heimspekinginn sem sat alltaf um börn að leik og eltist við og handsamaði skopparakringlu þeirra:
Hann áleit nefnilega að þekking á öllum smáatriðum, semsagt einnig til dæmis skopparakringlunnar, nægði til þekkingar á hinu almenna. Þessvegna fékkst hann ekki við stóru vandamálin sem honum þóttu óhagkvæm. Væri hið minnsta smáatriði í raun og veru þekkt, þá var allt þekkt, þessvegna fékkst hann eingöngu við kringluna sem snerist. Og alltaf þegar undirbúningur að snúningi kringlunnar hófst, varð hann vongóður um að núna myndi það heppnast, og þegar kringlan tók að snúast og hann hljóp lafmóður á eftir henni, varð vonin að vissu, en þegar hann hélt svo á þessum kjánalega trésnúð í hendinni, varð honum óglatt og óp barnanna, sem hann til þessa hafði ekki heyrt en glumdu honum núna skyndilega í eyrum, hröktu hann í burtu; hann skjögraði líkt og skopparakringla undan klaufalegum svipuhöggum.
Ójá.
July 23rd, 2008 at 5:13 pm
Djöfull þarf ég að losa mig við sjónvarpið… heilinn í mér er svo sannarlega í dauðateygjunum af öllum þessum hryllingi sem ég þröngva upp á hann. Ég stakk upp á þessu við hjássa og hann benti mér kurteisislega á það að ég þyrfti nú aldeilis ekki að henda sjónvarpinu út úr íbúðinni; það væri alveg nóg að slökkva á því.
Málið er bara ekki svo einfalt… ef það er sjónvarp heima hjá mér þá kveiki ég á því… og þá er líka kveikt á því þangað til ég fer að sofa. Algjör vibbi.
Hins vegar hef ég stundum ekki verið með sjónvarp og þá sakna ég þess akkúrat ekki neitt.
(Hver veit… kannski ég drullist þá til að byrja á DeLillo…)
July 27th, 2008 at 11:44 pm
Blessuð vertu þetta er bara eitthvað menningarsnobb í mér. Skiptir engu hvort maður steikir heilann á skjánum eða síðum bóka. Snýst bara um hverju maður nennir hverju sinni.
Hins vegar skaltu endilega byrja á DeLillo, hann er flottur.