Archive for May, 2008

snillingur

Wednesday, May 28th, 2008

Mikill snillingur er Dylan. Ég er ekki frá því að hann hafi verið betri í Laugardalshöll en þegar ég sá hann í London um árið. Húsnæðið bar þó af í London.

Ég nennti ekki að troða mér framarlega og sætti mig fljótt við að það væri ekki hundrað í hættunni þó að ég væri ekki með Dylan beint fyrir framan andlitið á mér alla tónleikana. Og þvílíkir tónleikar! Kallinn í ótrúlegu stuði, bandið hreint magnað og lagavalið flott.

Ég hef nokkra hitt sem hafa kvartað yfir lagavalinu. Dylan spilaði mest af nýjustu plötunni Modern Times, líklega ein sjö lög, eitthvað af næstu tveimur þar á undan og dágóðan slatta af gömlu perlunum. Er þetta ekki eðlilegasti hlutur í heimi? Það hefði ég haldið, en það er eins og sumir hafi reiknað með því að þeir gengju inn í tímavél þegar farið var í Laugardalshöllina og þeir væru á sjöunda áratugnum að dilla sér við Blowin in the Wind. Sem hann tók í frábærri útsetningu.

Einhverjir hafa líka kvartað yfir röddinni. Þeir hinir sömu hafa greinilega ekkert fylgst með Dylan síðustu árin. Ég játa það að í fyrsta laginu, Stuck Inside a Mobile with the Memphis Blues Again, leist mér ekki á blikuna. En hann var bara að hita sig upp. Síðan var hann með sína sérstöku rödd sem verið hefur hans vörumerki alla tíð.

Og alltaf er hann eins á tónleikum; ryður út úr sér textunum þegar honum svo sýnist þannig að menn greina ekki alltaf laglínuna. Smellir svo einni og einni línu í fallegri melódíu. Svona hefur hann alla tíð verið.

Já Dylan er snillingur. Lifandi listamaður sem hefur skapað sum af sín bestu verkum á síðustu árum. Heldur endalaust áfram, er á stöðugum tónleikaferðum og dælir út meistaraverkum 67 ára gamall. Setur sjálfan sig ekki í forgrunn, er bara einn af bandinu og er ekki að eyða dýrmætum tíma í kjaftæði á milli laga. Eitthvað sem Bubbi mætti taka sér til fyrirmyndar. Þvílíkir tónleikar!