nú er nóg komið
Tuesday, April 1st, 2008Deilur innan húsfélagsins á Holtsgötu 14a hafa nú náð þeim hæðum að óklífanlegar eru. Skoðanaágreiningur hefur rist svo djúpa gjá á millum hæðanna að óbrúanlegar eru og því ljóst að illfært er orðið um svæðið. Nú er svo komið að rishæðin hefur stofnað nýja síðu www.andhusfelagholtsgotu14a.is og verður hún fljótlega virk. Ég ætla að fara að dæmi mér vitrari manna og draga mig í hlé. Að lokum legg ég til að sjálfhverfni ráði alltaf för í spéi félaga.