19. aldar götumynd

Hvað á Ólafur F. Magnússon og nýi meirihlutinn lengi að fá að þusa um þessa 19. aldar götumynd sína á laugaveginum? Heldur hann virkilega að nr. 4 og 6 hafi verið reist upp úr 1880 eða hvað? Á kannsk iað rífa niður öll hús sem ekki voru þar á 19. öldinni, eða hvað á maðurinn eiginlega við?

2 Responses to “19. aldar götumynd”

  1. anna Says:

    Þar sem hann miðar við nítjándu öldina án sérstaks tillits til ákveðins árs eða áratugar, hlýtir hann að miða við þann hluta aldarinnar sem er mitt á milli endanna, þ.e. miðja öldina. Síðan pantar hann jarðýtu og lætur breyta Laugaveginum í breiðstræti sem nær væntanlega alveg niður á Hverfisgötu og upp á Grettisgötu.
    Annars er ég farin að hafa áhyggjur af karlskömminni. Það var hræðilegt að sjá til hans í Kastljósinu í kvöld.

  2. Stefán Says:

    Ég var að hlusta á útvarpsfréttir áðan og þar kom svarið eiginlega fram.

    Það virðist vera ætlunin að varðveita “götumyndina” - en þar með er ekki sagt að halda þurfi í einstök hús.

    Með öðrum orðum - húsin frá 19. öldinni (sem eru reyndar flest frá byrjun þeirrar tuttugustu) má rífa, en það þarf bara að passa að byggja í staðinn eitthvað sem lítur þannig út að það gæti verið gamalt, svona eins og nýi Fjalakötturinn í Aðalstrætinu.

    Þetta hljómar verulega plebbalega.

Leave a Reply